Skip to content

Heimsmeistaramót unglinga í kraftlyftingum – Pedro með brons í hnébeygju

Pedro Monteiro De Oliveira var fyrstur af íslensku keppendunum á pallinn. Pedro keppir í búnaði, í -83 kg flokki. Hann átti frábæra hnébeygju session. Pedro opnaði örugglega með 250 kg. Í annarri umferð hækkaði hann um 20 kg og 270 kg fóru örugglega upp. Þetta var persónulega bæting og ný Íslandsmet, í opnum flokki og unglingaflokki. Í þriðju hnébeygjunni meldaði Pedro 275 kg sem fóru örugg upp. Lokalyftan var aftur bæting á Íslandsmetum og tryggði Pedro brons í hnébeygju.  Bekkpressan byrjaði vel með 160 kg lyftu sem var heil 30 kg persónuleg bæting. Vegna tæknivillu hjá tímaverði fékk Pedro aðra tilraun við lyftu tvö í lok þeirrar umferðar, stöngin fór upp en dæmd ógild vegna sigs á leið upp. Í þriðju tilraun reyndi Pedro við 172,5 kg, náði því miður ekki að læsa og lyftan dæmd ógild. Í réttstöðulyftu opnaði Pedro á 240 kg og í annarri lyftu fóru 255 kg sömuleiðis upp. Í lokalyftunni reyndi Pedro við 265 kg sem hefði orðið persónuleg bæting í réttstöðulyftu um 2,5 kg og total 700 kg en gekk ekki að þessu sinni. Samanlagður árangur Pedros varð 690 kg og 4.sætið. Innilega til hamingju með Íslandsmetin og hnébeygjubronsið, Pedro !