Skip to content

Heimsmeistaramót unglinga í kraftlyftingum

 

Heimsmeistaramót unglinga í kraftlyftingum hófst í dag. Keppt er bæði í klassískum kraftlyftingum og í kraftlyftingum með búnaði. Mótsstaður er sjálf Mið-Ameríka eða San José sem er höfuðborg Kosta Ríka. Fyrstu dagar mótsins eru helgaðir kraftlyftingum með búnaði en 28. ágúst byrjar klassíski hlutinn. Ísland sendir 8 keppendur á mótið. Yfirþjálfari er Auðunn Jónsson og honum til aðstoðar eru Hinrik Pálsson og Þórunn Brynja Jónasdóttir. Þórunn mun einnig sinna dómgæslu á mótinu.

Beint streymi er frá mótinu á YouTube rás IPF : BEINT STREYMI

Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:

KRAFTLYFTINGAR MEÐ BÚNAÐI

ÞRIÐJUDAGINN 26. ÁGÚST

Pedro Monteiro De Oliveira, -83 kg unglingaflokkur, kl. 20.00 að íslenskum tíma.

MIÐVIKUDAGINN 27. ÁGÚST

Einar Rafn Magnússon, +120 kg unglingaflokkur, kl. 22.00 að íslenskum tíma.

KLASSÍSKAR KRAFTLYFTINGAR

MÁNUDAGINN 1. SEPTEMBER

Signý Lára Kristinsdóttir, -76 kg unglingaflokkur, kl. 19.00 að íslenskum tíma.

MIÐVIKUDAGINN 3. SEPTEMBER

Máni Freyr Helgason, -93 kg unglingaflokkur, kl. 20.00 að íslenskum tíma.

FIMMTUDAGINN 4. SEPTEMBER

Alvar Logi Helgason, -105 kg unglingaflokkur, kl. 15.00 að íslenskum tíma.

Hinrik Veigar Hinriksson, -105 kg unglingaflokkur, kl. 15.00 að íslenskum tíma.

FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER

Helgi Jón Sigurðsson, -120 kg unglingaflokkur, kl. 15.00 að íslenskum tíma.

Sebastiaan Dreyer, -120 kg unglingaflokkur, kl. 15.00 að íslenskum tíma.

ÁFRAM ÍSLAND !!