Skip to content

Heimsmeistaramót unglinga í kraftlyftingum – Signý Lára með glæsilegar bætingar og Íslandsmet

Um helgina hófst klassíski hluti HM unglinga í kraftlyftingum. Fyrst að keppa í klassík af íslenska hópnum var Signý Lára Kristinsdóttir sem keppir  í -76 kg flokki unglinga. Hún átti frábæran dag á pallinum. Í hnébeygju opnaði Signý Lára á léttum 150 kg. Í annarri lyftu hækkaði hún í 160 kg sem hreyfðust jafnvel og fyrsta lyfta. Þessi lyfta var 2 kg persónuleg bæting og nýtt Íslandsmet unglinga. Í lokahnébeygju bætti Signý Lára enn í og lyfti örugglega 167,5 kg sem voru aftur ný persónuleg bæting og bæting á Íslandsmeti um heil 9,5 kg. Allar lyfturnar vel djúpar og þrjú hvít ljós á röðina. Í bekkpressu opnaði Signý Lára á 80 kg sem voru jöfnun á hennar besta. Í annarri bekkpressu tók hún örugg 87,5 kg sem var persónuleg bæting um heil 7,5 kg. Í lokalyftu bekkpressunnar hækkaði Signý Lára um 5 kg og fóru 92,5 kg upp með baráttuviljann að vopni. Glæsileg persónuleg bæting um heil 12,5 kg í bekkpressu og aftur þrjú hvít ljós á röðina. Signý Lára opnaði í réttstöðulyftu með 152,5 kg á stönginni sem flugu upp. Hún hækkaði um 15 kg í lyftu tvö og fóru 167,5 kg örugglega upp. Í lokalyftunni hækkaði Signý Lára um heil 12,5 kg og voru 180 kg hlaðið á stöngina. Signý Lára kláraði keppnina með að taka þau upp með stæl. Lyftan var persónuleg bæting um 7,5 kg og nýtt Íslandsmet unglinga. Eins og í hinum greinunum fékk Signý Lára þrjú hvít ljós á röðina. Samanlagður árangur Signýjar Láru varð 440 kg sem eru ekki meira né minna en 32,5 kg persónuleg bæting og nýtt glæsilegt Íslandsmet, sem hún átti sjálf fyrir. Innilega til hamingju með allar bætingarnar og Íslandsmetin, Signý Lára !