Máni Freyr Helgason var næstur af keppendum Íslands í klassík. Hann keppir í -93 kg flokki unglinga. Máni Freyr massaði hnébeygjurnar örugglega. Hann opnaði með 215 kg á stönginni sem hreyfðust vel. Í annarri lyftu hækkaði Máni Freyr um 15 kg og hreyfðust 230 kg jafnvel og fyrsta hnébeygjan. Í lokaumferð hækkaði hann í 242,5 kg sem eru aðeins 5 kg undir hans besta. Hann kláraði hnébeygjuna eins og hinar tvær með þrjú hvít ljós á röðina. Í bekkpressu opnaði Máni Freyr á fisléttum 162,5 kg. Í annarri umferð hækkaði hann um 10 kg eða í 172,5 kg sem hreyfðust jafnvel og opnunin. Í þriðju og síðustu umferð bekkpressu voru 180 kg sett á stöngina og má segja að þriðja lyftan hafi litið út fyrir að vera léttari en lyftan á undan og aftur þrjú hvít ljós á röðina. Þar með var persónuleg bæting um 5 kg í bekkpressu komin í hús. Máni Freyr opnaði á mjög þægilegum 265 kg í réttstöðulyftu. Í annarri lyftu hækkaði hann um 22,5 kg og fóru 287,5 kg upp jafn örugglega og fyrsta lyfta. Í lokalyftunni reif Máni Freyr upp af öryggi heil 300 kg. Þrjú hvít ljós, 4,5 kg persónuleg bæting og nýtt Íslandsmet sem hann átti fyrir sjálfur. Samanlagður árangur Mána Freys varð 722,5 kg sem er 4,5 kg persónuleg bæting. Innilega til hamingju með bætingarnar og Íslandsmetið, Máni Freyr !

