Einar Rafn Magnússon var næstur á pallinn. Einar Rafn keppir í búnaði, í +120 kg flokki. Í hnébeygju opnaði Einar Rafn á 295 kg sem hreyfðust létt. Hann hækkaði upp í 315 kg í lyftu tvö sem hreyfðist jafnvel og sú fyrsta. Í þriðju umferð voru 330 kg á stönginni og hreyfðust þau vel eins og hinar tvær lyfturnar og fékk Einar Rafn þrjú hvít ljós fyrir hana. Þau kíló voru 5 kg persónuleg bæting. Í bekkpressu opnaði Einar Rafn á 170 kg. Í annarri umferð hækkaði hann um 10 kg og fóru 180 kg örugglega upp. Þetta var heil 32,5 kg persónuleg bæting. Í lokaumferð bekkpressu reyndi Einar Rafn við 190 kg en þau vildu ekki upp að þessu sinni. Í réttstöðulyftu opnaði Einar Rafn á 240 kg sem fóru létt upp og sama gilti um aðra lyftu þar sem 262,5 kg flugu upp. Sú lyfta var 2,5 kg persónuleg bæting. Í lokaumferð réttstöðulyftu reyndi Einar Rafn við 275 kg og vantaði aðeins herslumuninn að geta klárað lyftuna. Samanlagður árangur varð 772,5 kg sem er 40 kg glæsileg persónuleg bæting. Innilega til hamingju mótið og allar bætingarnar, Einar Rafn !

