Það voru tveir keppendur frá Íslandi sem kepptu í -105 kg unglinga. Það voru Alvar Logi Helgason og Hinrik Veigar Hinriksson.
Alvar Logi opnaði létt með 245 kg á stönginni. Hann hækkaði í 257,5 kg í næstu sem hreyfðust vel eins og fyrsta. Í þriðju hnébeygju gerði Alvar Logi tilraun til að bæta sinn persónulega árangur um 5 kg en 265 kg vildu ekki upp að þessu sinni. Í bekkpressu opnaði Alvar Logi með þægileg 172,5 kg. Í annarri lyftu hækkaði hann um 10 kg og fóru þau örugglega upp og 2,5 kg persónulega bæting. Í lokalyftu bekkpressu reyndi Alvar Logi við 187,5 kg en þau vildu ekki upp í þetta skiptið. Í fyrstu réttstöðulyftu reif Alvar Logi 275 kg örugglega upp. Önnur lyftan með 287,5 kg hreyfðust jafnvel. Í lokalyftu réttstöðu reyndi Alvar Logi við 300 kg sem hefði orðið persónuleg bæting um 10 kg en það vantaði herslumuninn að hún færi alla leið. Samanlagður árangur varð 727,5 kg sem er bara rétt undir hans besta. Innilega til lukku með bætinguna, Alvar Logi !
Hinrik Veigar opnaði í hnébeygju með léttri 255 kg beygju. Í annarri lyftu hækkaði hann um 12,5 kg sem fóru örugg upp. Í þriðju hnébeygjunni voru 277,5 kg hlaðið á og og kláraði Hinrik Veigar lyftuna af öryggi. Persónuleg bæting og nýtt Íslandsmet sem hann á sjálfur fyrir. Í bekkpressu opnaði Hinrik Veigar á fisléttum 150 kg sem voru jöfnun á hans besta. Önnur lyfta með 157,5 kg hreyfðust þægilega. Í þriðju bekkpressu voru 165 kg sett á stöngina og kláraði Hinrik Veigar lyftuna en dæmd ógild vegna tæknivillu. Hinrik Veigar átti því miður ekki góðan dag í réttstöðulyftu. Hann kláraði allar þrjár lyfturnar sem voru 285 kg – 292,5 kg – 295 kg en lyfturnar fengu ekki náð hjá ýmist dómurum eða kviðdómi vegna tæknivillu. Hinrik Veigar fékk þess vegna engan árangur skráðan á sig og beygjumetið ógilt. Það er óhætt er að segja að styrkurinn er sannarlega þarna hjá Hinrik Veigari og þetta mót fer í reynslubankann hjá kappanum.
