Skip to content

Heimsmeistaramót unglinga í klassískum kraftlyftingum

Í dag, þriðjudaginn 18. ágúst, hófst Heimsmeistaramót unglinga í klassískum kraftlyftingum og kraftlyftingum með búnaði. Mótið hefst á kraftlyftingum með búnaði en föstudaginn 21. ágúst hefst klassíski hlutinn. Frá Íslandi mætir frábær hópur af sjö ungum keppendum sem allir keppa í klassískum kraftlyftingum. Mótsstaður er Sun City í Suður-Afríku. Yfirþjálfari er Auðunn Jónsson og honum til aðstoðar er Þórunn Brynja Jónasdóttir og Hinrik Pálsson. Þórunn mun einnig sinna dómgæslu. Það verður virkilega gaman að fylgjast með unga fólkinu spreyta sig á stóra sviðinu.

Bein streymi er á YOU TUBE rás IPF.

Úrslit frá keppni má finna HÉR.

Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:

FÖSTUDAGINN 21. ÁGÚST
Ragnar Ingi Ragnarsson, -66 kg drengjaflokkur (sub-junior) – kl. 07.00 að íslenskum tíma.

SUNNUDAGINN 23. ÁGÚST
Guðrún Ásgeirsdóttir, -69 kg telpnaflokkur (sub-junior) – kl. 12.00 að íslenskum tíma.

ÞRIÐJUDAGINN 25. ÁGÚST
Haniem Khalid, -57 kg unglingaflokkur (junior) – kl. 08.00 að íslenskum tíma.

FÖSTUDAGINN 28. ÁGÚST
Signý Lára Kristinsdóttir, -76 kg unglingaflokkur (junior) – kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Benóný Helgi Benónýsson, -93 kg unglingaflokkur (junior) – 11.00 að íslenskum tíma.

LAUGARDAGINN 29. ÁGÚST
Benjamín Fanndal Sturluson, -105 kg unglingaflokkur (junior) – kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Róbert Guðbrandsson, -120 kg unglingaflokkur (junior) – kl. 12.00 að íslenskum tíma.
Sebastiaan Dreyer, -120 kg unglingaflokkur (junior) – kl. 12.00 að íslenskum tíma

KOMA SVO 🙂