Skip to content

Heimsmeistaramót öldunga í kraftlyftingum (klassískum og með búnaði)

Það styttist í að HM öldunga í kraftlyftingum hefjist. Mótið er að þessu sinni haldið í borginni Reno í Nevada fylki í Bandaríkjunum. Mótið er fjölmennt eins og oft áður, samtals 507 keppendur, yngstu fæddir 1986 og elsti 1944. Sem sagt aldrei of seint að byrja að æfa kraftlyftingar ! Frá Íslandi mætir góður hópur. Kristleifur Andrésson er aðalþjálfari og dæmir á mótinu.

Beint streymi verður á You Tube rás IPF.

Tímaáætlun íslenska hópsins:

KLASSÍSKAR KRAFTLYFTINGAR:

Dagmar Agnarsdóttir, -57 kg flokkur, Master 4: 
fimmtudaginn 15. október kl. 20.30 að íslenskum tíma (staðartími kl. 13.30)

Elsa Pálsdóttir, -84 kg flokkur, Master 3:
laugardaginn 17. október kl. 01.00 að íslenskum tíma (staðartími föstudaginn 16. október kl. 18.00)

Jóhann Tómas Sigurðsson, -93 kg flokkur, Master 2:
sunnudaginn 18. október kl. 00.00 að íslenskum tíma. (staðartími laugardaginn 17. október kl. 17.00)

Sigríður Snorradóttir, -69 kg flokkur, Master 2:
sunnudaginn 18. október kl. 16.00 að íslenskum tíma.(staðartími kl. 09.00)

Dagbjartur Finnsson, +120 kg flokkur, Master 2:
sunnudaginn 18. október kl. 20.30 að íslenskum tíma (staðartími kl. 13.30)

KRAFTLYFTINGAR MEÐ BÚNAÐI:

Hörður Birkisson, -74 kg flokkur, Master 3:
fimmtudaginn 22. október kl. 16.00 að íslenskum tíma (staðartími kl. 09.00)

Elsa Pálsdóttir, -84 kg flokkur, Master 3:
föstudaginn 23. október kl. 00.30 að íslenskum tíma.(staðartími fimmtudaginn 22. október kl. 17.30)

Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir, -76 kg flokkur, Master 2:
föstudaginn 23. október kl. 20.30 að íslenskum tíma (staðartími kl. 13.30)

Laufey Agnarsdóttir, +84 kg flokkur, Master 2:
föstudaginn 23. október kl. 20.30 að íslenskum tíma (staðartími kl. 13.30)

KOMA SVO !