Skip to content

Hádegisfyrirlestur í HR föstudaginn 9. maí – Dr. Allan Johnston kynnir nýjustu rannsóknir um algengi ADHD meðal íþróttafólks í Bretlandi 

Á föstudaginn 9. maí býður Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík upp á hádegisfyrirlestur á milli 12-13 í stofu V102. Þar mun Dr. Allan Johnston kynna nýjustu rannsóknir um algengi ADHD meðal íþróttafólks í Bretlandi og útskýra hvernig UKAD (breska lyfjaeftirlitið) fer með greiningu og meðferð. 

Dr. Johnston mun fjalla um þrjú helstu einkenni ADHD – athyglisbrest, ofvirkni og hvatvísi – með raunverulegum dæmum úr starfi með íþróttafólki. Einnig verða kynntar leiðbeiningar NICE (NG87) um meðferð og líf-sálfélagsleg nálgun sem sameinar lyf og hugræna atferlismeðferð (HAM).

Fyrirlesturinn vekur athygli á mikilvægu samtali um gagnreynda starfshætti og reynslubundna þekkingu í íþróttasálfræði og geðheilbrigðisþjónustu.

Fyrirlesturinn verður öllum opinn og skráningar er ekki þörf. HR mun taka fyrirlesturinn upp, en óvíst er með streymi.

Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook