Skip to content

Evrópumótið í kraftlyftingum með búnaði

Nú styttist í Evrópumótið í kraftlyftingum með búnaði. Mótið er haldið í Pilsen í Tékklandi og stendur yfir 2.-11. maí. Ísland á sjö keppendur á mótinu : Einar Rafn Magnússon BRE  (Jr), Pedro Oliveira BRE (Jr), Alex Cambray Orrason KA (O),  Guðfinnur Snær Magnússon BRE (O), Agnes Ýr Rósmundsdóttir BRE (O), Elsa Pálsdóttir MAS (M3) og Sæmundur Guðmundsson MAS (M4). Aðstoðarmenn eru Hjálmar Andrésson, Íris Garðarsdóttir, Júlían J.K. Jóhannsson, Sóley Margrét Jónsdóttir og Kristleifur Andrésson sem mun einnig dæma á mótinu.

Beint streymi er frá mótinu á YouTube rás EPF : BEINT STREYMI

Keppnisdagskrá íslenska hópsins : 

LAUGARDAGINN 3. MAÍ – Pedro Monteiro De Oliveira keppir í -83 kg unglingaflokki. Pedro keppir kl. 12. 30 að íslenskum tíma.

SUNNUDAGINN 4. MAÍ – Einar Rafn Magnússon keppir í -120 kg unglingaflokki. Einar Rafn keppir kl. 12.30 að íslenskum tíma.

ÞRIÐJUDAGINN 6. MAÍ – Alex Cambray Orrason keppir í -93 kg opnum flokki. Alex keppir kl. 9.00 að íslenskum tíma.

MIÐVIKUDAGINN 7. MAÍ – Agnes Ýr Rósmundsdóttir keppir í +84 kg opnum flokki. Agnes keppir kl. 8.00 að íslenskum tíma. Guðfinnur Snær Magnússon keppir í +120 kg opnum flokki. Guðfinnur Snær keppir kl. 11.30 að íslenskum tíma.

FIMMTUDAGINN 8. MAÍ – Elsa Pálsdóttir sem keppir í -76 kg M3 flokki og Sæmundur Guðmundsson sem keppir í -83 M4 flokki keppa bæði kl. 8.00 að íslenskum tíma. 

Áfram Ísland !