Í dag hófst Evrópumótið í bekkpressu sem haldið er á Möltu. Keppt er bæði í klassískri bekkpressu og bekkpressu með búnaði. Frá Íslandi mæta fjórir keppendur.
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
Miðvikudaginn 24. september
Klassísk bekkpressa
Þórður Skjaldberg, -105 kg unglingaflokkur, holl 1. Keppni hefst kl. 13.30.
Fimmtudaginn 25. september
Klassísk bekkpressa
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg opinn flokkur, holl 1. Keppni hefst kl. 13.00
Föstudaginn 26. september
Bekkpressa með búnaði
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg Master 2, holl 1. Keppni hefst kl. 08.00.
Sunnudaginn 28. september
Bekkpressa með búnaði
Kristjana María Steingrímsdóttir, + 84 kg opinn flokkur, holl 1, Keppni hefst kl. 13.30.
Laufey Agnarsdóttir, + 84 kg opinn flokkur, holl 1, Keppni hefst kl. 13.30.
Þjálfari er Ingimundur Björgvinsson og Laufey Agnarsdóttir mun dæma á mótinu ásamt því að aðstoða.
Beint streymi verður á Goodlift.info

