Skip to content

Evrópumótið í bekkpressu – Þórður með bætingu

Í dag mætti Þórður Skjaldberg fyrstur af hópnum á pallinn. Hann keppti í -105 kg unglingaflokki í klassískri bekkpressu. Þórður átti aldeilis flottan dag. Hann opnaði á 155 kg sem flugu upp. Í annarri tilraun hækkaði Þórður um 10 kg og fóru 165 kg örugglega upp. Þá var ákveðið að reyna við persónulega bætingu. Það voru 172,5 kg melduð fyrir síðustu og eins og fyrri lyftur hjá Þórði fóru þau kíló af festu upp. Þrjú hvít ljós í öllum lyftum. Innilega til hamingju með bætinguna, Þórður !