Guðný Ásta Snorradóttir mætti á pallinn í dag. Hún keppti í +84 kg opnum flokki í klassískri bekkpressu. Guðný átti frábæran dag. Stefnan var sett á bætingu á eigin Íslandsmetum í öldungaflokki 1 og 2 sem eru 112 kg og það gekk svo sannarlega eftir. Hún opnaði á þægilegum 107,5 kg. Í annarri tilraun voru 112,5 kg sett á stöngina sem fóru örugglega upp. Þar með komin Íslandsmet í öldungaflokki 1 og 2. Í lokaumferðinni var 115 kg hlaðið á stöngina og kláraði Guðný þá lyftu af sama öryggi og bætti þar með Íslandsmetin tvö sem hún tók í annarri lyftu. Innilega til hamingju með öll metin, Guðný !

