Skip to content

Evrópumótið í bekkpressu – Guðný Evrópumeistari

Það var ekki mikil hvíld sem Guðný Ásta Snorradóttir fékk eftir gærdaginn því í morgun var hún mætt aftur á pallinn en nú í bekkpressu með búnaði. Hún keppti í +84 kg öldungaflokki 2 (M2). Guðný átti flottan dag í bekkpressu með búnaði. Hún opnaði á 135 kg sem eru 7,5 kg persónuleg bæting. Reyndi tvisvar við 140 kg sem vildu ekki upp að þessu sinni en það breytti því ekki að Guðný  stóð uppi sem Evrópumeistari í flokknum. Þar að auki var Guðný önnur stigahæst kvenna yfir alla þyngdarflokka í M2 aldursflokknum. Innilega til hamingju með Evrópumeistaratitilinn, Guðný !