Skip to content

Evrópumeistaramótið í bekkpressu – Laufey í 3. sæti í opnum flokki

Á síðasta degi Evrópumeistaramótsins í bekkpressu með búnaði kepptu Laufey og Kristjana í +84 kg opnum flokki. Laufey keppir vanalega í flokki öldunga M2, en í þetta skiptið keppti hún í opnum flokki og sýndi að hún á sannarlega erindi þar. Laufey byrjaði á að lyfta 135 kg af miklu öryggi. Kristjana reyndi við 147.5 kg en þau fóru ekki upp. Í annarri lyftu bað Laufey um 142.5 kg, sem flugu líka upp. Sú lyfta er nýtt Íslandsmet í flokki M1 og M2.  Kristjana bað um 152.5 kg á stöngina í annarri og þriðju lyftu, en tókst ekki að lyfta því að þessu sinni. Þetta var fyrsta alþjóðlega mót Kristjönu og kemur hún heim reynslunni ríkari. Í þriðju lyftu bætti Laufey um betur og lyfti 147.5 kg og bætti þar með Íslandsmetið aftur. Árangur Laufeyjar tryggði henni bronsverðlaun í feykisterkum +84 kg flokki. Með þessum árangri varð Laufey elsti íslenski keppandinn til að vinna til verðlauna í opnum flokki á alþjóðamóti.  (E.M.A.)