Skip to content

Evrópumeistaramótið í bekkpressu (klassík og með búnaði)

Á morgun sunnudaginn 2. ágúst hefst Evrópumeistarakeppnin í bekkpressu (kiassík og með búnaði). Frá Íslandi mætir mjög stór og öflugur hópur. Mótið er haldið í Druskininkai í Litháen eða á sama stað og HM í klassískum kraftlyftingum var haldið fyrr í sumar. Dagana 2. – 6. ágúst fer fram keppni í klassískri bekkpressu en 7.-9. ágúst verður keppni í bekkpressu með búnaði. Yfirþjálfari er Kristleifur Andrésson og aðstoðarþjálfari er Hjálmar Andrésson. Kristleifur mun einnig dæma á mótinu. 

Á mótinu verður einnig hópur frá Íslandi (Íþróttasambandi fatlaðra) sem keppir á sk. SOI hluta mótsins (Special Olympics International Powerlifting). Sá hluti mótsins er á morgun kl. 10.00 að íslenskum tíma. 

Beint streymi er frá mótinu á Goodlift TV.

Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins, klassík 2.-6. ágúst & með búnaði 7.-9. ágúst:

MÁNUDAGINN 3. ÁGÚST – KLASSÍK
Benóný Benónýsson, -93 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Davíð Þór Peñalver, -93 kg öldungaflokkur 1 (master 1), kl. 12.00 að íslenskum tíma.

ÞRIÐJUDAGINN 4. ÁGÚST – KLASSÍK
Tara Szklenar, -57 kg telpnaflokkur (sub-junior), kl 07.00 að íslenskum tíma.
Grímur Nói Pétursson, -93 kg drengjaflokkur (sub-junior), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Svanur Bergvins Guðmundsson, -83 kg drengjaflokkur (sub-junior), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Eva Dís Valdimarsdóttir, -57 kg unglingaflokkur (junior), kl. 12.30 að íslenskum tíma.
Herdís Anna Ólafsdóttir, -63 kg unglingaflokkur (junior), kl. 15.00 að íslenskum tíma.

MIÐVIKUDAGINN 5. ÁGÚST – KLASSÍK
Benóný Helgi Benónýsson, -93 kg unglingaflokkur (junior), kl. 09.00 að íslenskum tíma.
Þórður Skjaldberg, -105 kg unglingaflokkur (junior), kl. 09.00 að íslenskum tíma.
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 14.00 að íslenskum tíma.

FIMMTUDAGINN 6. ÁGÚST – KLASSÍK
Elín Melgar Aðalheiðardóttir, -69 kg opinn flokkur, kl. 09.00 að íslenskum tíma.
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg opinn flokkur, kl. 13.00 að íslenskum tíma.

FÖSTUDAGINN 7. ÁGÚST – BÚNAÐUR
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Laufey Kristjánsdóttir,  -69 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Sesselja S. Ómarsdóttir, -76 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Sigríður Á. Andersen, -63 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Rebekka Sylvía Ragnarsdóttir, -57 kg öldungaflokkur 1 (master 1), kl. 12.00 að íslenskum tíma.
Hrefna Rósa Sætran, -69 kg öldungaflokkur 1 (master 1), kl. 13.00 að íslenskum tíma.
Davíð Þór Penalever, -93 kg öldungaflokkur 1 (master 1), kl. 16.00 að íslenskum tíma.

LAUGARDAGINN 8. ÁGÚST – BÚNAÐUR
Anton Haukur Þórlindsson, -83 kg drengjaflokkur (sub-junior), kl. 07.00 að íslenskum tíma.

SUNNUDAGINN 9. ÁGÚST – BÚNAÐUR
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Elín Melgar Aðalheiðardóttir, -69 kg opinn flokkur, kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Laufey Agnarsdottir, +84 kg opinn flokkur, kl. 13.00 að íslenskum tíma.

Áfram Ísland !