Skip to content

Evrópumeistaramót unglinga í klassískum kraftlyftingum – Signý Lára

Signý Lára Kristinsdóttir mætti á pallinn í morgun. Hún keppir í -76 kg unglingaflokki. Signý Lára opnaði á öruggum 155 kg. Í næstu beygju var hækkað í 165 kg, rétt undir hennar besta en þau vildu ekki upp að þessu sinni. Í þriðju beygjunni gerði Signý Lára tilraun til að bæta eigið Íslandsmet með 170 kg á bakinu en náði ekki að klára lyftuna. Fyrsta lyfta í bekkpressu, 80 kg, flugu upp hjá Signýju Láru. Sama gilti um lyftu tvö með 87,5 kg. Í þriðja bekknum reyndi Signý Lára við að jafna sitt besta með 92,5 kg en þau vildu ekki hreyfast af kassanum. Í réttstöðulyftu reif Signý Lára örugglega upp 160 kg af gólfinu. Í annarri lyftu var 12,5 kg bætt á og kláraði Signý Lára 172,5 kg lyftuna af öryggi. Í lokalyftunni reyndi Signý Lára við 180 kg sem hefði orðið jöfnun á hennar besta en náði því miður ekki að klára lyftuna. Samanlagður árangur varð 415 kg. Innilega til hamingju með mótið, Signý Lára !