Hinrik Veigar Hinriksson mætti fyrstur af hópnum á pallinn í dag. Hann keppir í -105 kg unglingaflokki. Hinrik Veigar opnaði í hnébeygju örugglega á 255 kg. Í annarri flugu 267,5 kg upp. Í þriðju beygju hækkaði Hinrik Veigar í 280 kg sem hann kláraði örugglega og bætti eigið Íslandsmet. Hinrik Veigar opnaði í bekkpressu með þægilegum 150 kg eða 7,5 kg undir sínu besta. Í annarri lyftu var hækkað um 5 kg og fóru 155 kg örugglega upp. Hinrik Veigar reyndi við persónulega bætingu með 160 kg á stönginn en þau vildu ekki upp að þessu sinni. Í réttstöðulyftu opnaði Hinrik Veigar örugglega með 285 kg. Í annarri lyftu reif hann 297,5 kg upp af gólfinu og kláraði örugglega en sú lyfta tryggði Hinriki Veigari nýtt Íslandsmet í samanlögðu eða 732,5 kg. Í lokalyftu reyndi Hinrik Veigar við 307,5 kg en þau vildu ekki upp að þessu sinni. Innilega til hamingju með mótið og Íslandsmetin, Hinrik Veigar !
Benjamín Fanndal Sturluson var næstur á pallinn. Hann keppir í -93 kg unglingaflokki. Þetta var fyrsta mót hans í unglingaflokki. Benjamín opnaði með þægilegum 205 kg í hnébeygju. Í annarri beygju fóru 215 kg líka létt upp. Benjamín reyndi síðan við persónulega bætingu í þriðju beygju með 222,5 kg á stönginni en náði ekki að klára. Hann opnaði örugglega í bekkpressu með hröðum 167,5 kg á stönginni. Í annarri massaði Benjamín síðan 175 kg. Í þriðju bekkpressu reyndi hann við jöfnun á sínu besta með 180 kg á stönginni en náði ekki að klára. Í réttstöðulyftu opnaði Benjamín á 237,5 kg sem flugu upp af pallinum. 250 kg í annarri hreyfðust þægilega í annarri lyftu og kláraði hann hana vel. Í lokalyftunni var 10 kg bætt á og massaði Benjamín 260 kg og þar með 5 kg persónuleg bæting í hús. Samanlagður árangur varð 650 kg. Innilega til hamingju með mótið og bætinguna, Benjamín !


