Fyrstur á pallinn af íslensku keppendunum var Pedro Oliveira. Hann keppti í -83 kg flokki unglinga. Þetta er fyrsta alþjóðlega mót Pedro í kraftlyftingum með búnaði. Pedro átti frábært mót. Hann bætti eigið Íslandsmet í hnébeygju um heil 14,5 kg í þriðju beygju með 255 kg. Í bekkpressu opnaði Pedro örugglega með 130 kg sem er 2,5 kg persónuleg bæting. Því miður gekk ekki upp með lyftur tvö og þrjú í bekkpressu. Í réttstöðulyftu opnaði Pedro á 230 kg, massaði 250 kg í annarri og í þriðju lyftu sló hann glæsilegt nýtt Íslandsmet með 262,5 kg. Sú lyfta tryggði honum brons í réttstöðulyftu. Samanlagður árangur varð því 647,5 kg sem er persónuleg bæting um heil 27 kg og 5. sæti í flokknum. Innilega til hamingju með Íslandsmetin og bætingarnar, Pedro !