Skip to content

EM í kraftlyftingum með búnaði – Jens á keppnispallinum

Síðasti meðlimur íslenska hópsins keppti í dag. Það var hann Jens Kristinsson en hann keppir í -105 kg, öldungaflokki 3. Jens opnaði á léttri 160 kg beygju sem var 5 kg bæting á Íslandsmeti. Hann endurtók leikinn með með flottri 175 kg beygju í annarri umferð. Í þriðju beygjunni voru 182,5 kg á stönginni og kláraði Jens beygjuna örugglega. Níu hvít ljós og þrjú ný Íslandsmet komin eftir beygjuna. Í bekkpressu opnaði Jens á 125 kg sem hreyfðust vel. Jens hækkaði í 137,5 kg en stöngin fór úr ferli og náði ekki að klára. Í þriðju umferð voru 137,5 aftur á stönginni en núna massaði Jens lyftuna og nýtt Íslandsmet í hús. Í réttstöðulyftu opnaði Jens á 185 kg sem hann negldi í klassík og 5 kg bæting á Íslandsmeti komið. Á stöngina voru sett 192,5 kg í annarri lyftu sem Jens kláraði örugglega. Í lokalyftunni voru 210 kg á stönginni, sem var 17,5 kg bæting á Íslandsmeti frá annarri lyftunni. Jens reif stöngina upp og kláraði mótið með stæl. Enn eitt Íslandsmetið í hús. Samanlagður árangur varð 530 kg sem er nýtt Íslandsmet. Innilega til hamingju með öll Íslandsmetin og mótið, Jens !