Skip to content

EM í kraftlyftingum með búnaði – Elsa og Sæmundur með verðlaun

Síðustu Íslendingarnir á keppnispallinn voru Elsa Pálsdóttir og Sæmundur Guðmundsson. Elsa keppti í -76 kg M3 flokki og Sæmundur í -83 kg M4 flokki. 

Elsa opnaði hnébeygju með 160 kg á stönginni en lyftan gekk ekki sem skyldi. Hún tók 160 kg  hins vegar örugglega í annarri lyftu. Í þriðju lyftu átti Elsa góða tilraun við heimsmet í M3 með 170,5 kg á stönginni en því miður gekk það ekki upp í dag. En hún endaði með 5 kg persónulega bætingu og þar með bætingu á eigin Íslandsmeti. Í bekkpressu opnaði Elsa á léttum 70 kg. Í annarri lyftu voru 77,5 kg á stönginn en keyrslan upp gekk ekki alveg í þetta skiptið en hún tók sömu þyngd örugglega í síðustu lyftunni. Í réttstöðulyftu opnaði Elsa með 165 kg á stönginn sem flugu upp. Í annarri lyftu með 176 kg á stönginn sló Elsa nýtt heimsmet í M3. Elsa bætti um betur og setti annað heimsmet í þriðju lyftu með 182,5 kg. Það var einnig 7 kg persónuleg bæting í réttstöðulyftu og á eigin Íslandsmeti. Samanlagður árangur varð 420 kg sem er nýtt heimsmet, nýtt Íslandsmet og persónuleg bæting um 9,5 kg. Elsa vann gull í hnébeygju, silfur í bekkpressu, gull í réttstöðulyftu, varð stigahæst í M3 og Evrópumeistari í samanlögðu. Innilega til hamingju með bætingarnar, metin og verðlaunin, Elsa !

Sæmundur keppti í -83 kg M4 flokki. Sæmundur opnaði með létt 150 kg í hnébeygju. Í annarri lyftu tók hann örugg 160 kg og í þriðju lyftu reyndi Sæmundur við 170 kg sem var dæmt ógild vegna dýptar. Í bekkpressu flugu 110 kg upp í fyrstu lyftu. Í annarri lyftu vildu 115 kg ekki fara upp og Sæmundur ákvað að sleppa þriðju lyftu. Fyrsta bekkpressan með 110 kg var 5 kg persónuleg bæting og nýtt Íslandsmet. Í réttstöðulyftu opnaði Sæmundur með 180 kg sem flugu upp og sama gilti um aðra lyftu með 190 kg á stönginni. Í þriðju lyftu vantaði bara herslumuninn að fá gilda lyfta með 200 kg en því miður gekk það ekki upp í dag. Samanlagður árangur varð 460 kg. Sæmundur vann gull í öllum greinum og varð Evrópumeistari í samanlögðu. Hjartanlega til hamingju með Íslandsmetið og verðlaunin, Sæmundur !