Skip to content

EM í kraftlyftingum með búnaði – Einar Rafn með silfur í samanlögðu

Einar Rafn Magnússon var næstur á pallinn af Íslendingunum. Hann keppti í -120 kg flokki unglinga. Einar Rafn átti hörkugóðan dag í Pilsen. Allar hnébeygjur gildar og endaði Einar Rafn með 325 kg sem eru heil 25 kg persónuleg bæting og gaf honum brons í hnébeygju. Í bekkpressu opnaði Einar Rafn á 140 kg, tók næst 147,5 kg sem er jöfnun á hans besta. Reyndi við 152,5 kg í þriðju sem vildu ekki upp að þessu sinni. Í réttstöðulyftu flaug fyrsta lyfta upp sem var 230 kg. Í annarri tók hann 260 kg sem er jöfnun á hans besta og í þriðju reyndi hann við 272,5 kg sem vantaði bara herslumuninn að færu upp. Lyfta tvö með 260 kg tryggði honum brons í réttstöðulyftu. Samanlagður árangur varð 732,5 kg sem er 35 kg persónuleg bæting og tryggði Einari Rafni silfur í flokknum. Hjartanlega til hamingju með bætingarnar og verðlaunin, Einar Rafn !