Andrés Þór Jóhannsson mætti í dag fyrstur af íslenska hópnum á keppnispallinn. Hann keppir í -120 kg unglingaflokki. Andrés opnaði í hnébeygju með 280 kg sem hann kláraði en lyftan var dæmd ógild. Í annarri beygju massaði hann hins vegar þyngdina örugglega með þremur hvítum ljósum. Í þriðju beygjunni meldaði Andrés 300 kg sem hefðu orðið 20 kg persónuleg bæting. Andrés kláraði lyftuna en það vantaði upp á dýptina og því dæmt ógild. Í bekkpressu opnaði Andrés með 175 kg á stönginni sem flugu upp. Hann hækkaði í 185 kg í annarri og kláraði af sama öryggi. Í lokalyftu bekkpressunnar voru 190 kg á stönginni, jöfnun á hans besta, en það vantaði bara herslumuninn á að Andrés náði að læsa olnbogunum í lokinn. Í réttstöðulyftunni voru 220 kg á stönginni, 5 kg undir hans besta. Andrés náði að að rífa hana upp af gólfinu en lyfta dæmd ógild vegna tæknigalla. Í annarri lyftu kláraði Andrés 220 kg hins vegar örugglega. Í lokalyftunni meldaði Andrés 240 kg. Andrés mætti harðákveðinn á pallinn og reif stöngina upp en náði ekki að klára og læsa. Samanlagður árangur varð 685 kg. Innilega til hamingju með fyrsta Evrópumeistaramótið, Andrés !

