Alex Cambray Orrason keppti í dag í -93 kg opnum flokki. Hann átti geggjaðan beygjudag. Opnaði á 327,5 kg, tók næst 345 kg og í þriðju beygju lyfti hann 357,5 kg sem er 10 kg bæting á hans eigin Íslandsmeti. Þessi lyfta tryggði honum silfur í hnébeygju í feykisterkum flokki. Bekkpressan var spennandi, fyrstu tvær lyfturnar gengu ekki alveg sem skyldi en Alex náði þriðju örugglega með 202,5 kg á stönginni. Réttstöðulyftan byrjaði vel með 260 kg í fyrstu lyftu. Kviðdómur snéri við annarri lyftu í ógilda en Alex massaði 275 kílóin í þriðju lyftu. Samanlagður árangur varð 835 kg og skilaði Alex 4. sæti í flokknum en það var líkamsþyngd sem skildi að 3. og 4. sæti í flokknum. Innilega til lukku með árangurinn og glæsilegt met í hnébeygju, Alex !