Skip to content

EM í kraftlyftingum með búnaði – Agnes Ýr og Guðfinnur Snær með verðlaun

Ísland átti tvo flotta keppendur í opnum flokki í dag. 

Agnes Ýr Rósmundsdóttir byrjaði en hún keppti í +84 kg flokki. Þetta var fyrsta alþjóðamót Agnesar Ýrar. Í hnébeygju opnaði hún á 210 kg en náði ekki dýpt, tók þyngdina hins vegar örugglega í annarri. Í þriðju beygju reyndi Agnes Ýr við 227,5 kg en fékk ekki gilda vegna dýptar. 210 kg eru 15 kg persónuleg bæting. Bekkpressan byrjaði örugglega með 122,5 kg og önnur lyfta með 132,5 kg fór af sama öryggi upp. Í þriðju reyndi Agnes Ýr við 137,5 kg sem fóru ekki upp að þessu sinni. Önnur lyftan í bekkpressu var persónuleg bæting um 5 kg og lyftan tryggði henni brons í bekkpressu. Agnes Ýr opnaði á 170 kg í réttstöðulyftu, en hún tók réttstöðulyftuna alla í klassík. Í annarri reif hún 182,5 kg af gólfinu og í þriðju reyndi Agnes Ýr við 190 kg sem vildu ekki alla leið upp. Önnur lyftan í réttstöðulyftu gaf henni brons í réttstöðulyftu. Samanlagður árangur varð 525 kg sem gaf henni brons í samanlögðu og var 30 kg persónuleg bæting í samanlögðu. Hjartanlega til hamingju með frábærar bætingar og verðlaunin, Agnes Ýr !

Guðfinnur Snær Magnússon keppti í +120 kg flokki.  Hann opnaði á 410 kg í hnébeygju en náði ekki dýpt.  Í annarri bætti Guðfinnur á stöngina og 420 kg fór örugglega niður og upp. Setti 442,5 kg  á stöngina í þriðju en missti jafnvægið. Lyfta tvö tryggði honum silfur í hnébeygju. Lyftan var persónuleg bæting um 2,5 kg og nýtt Íslandsmet. Fyrstu tvær lyftu í bekkpressu fengu ekki náð dómara en í þriðju lyftu fóru 310 kg upp og gáfu Guðfinnni brons í bekkpressu. Í réttstöðulyftu flugu 300 kg örugglega upp af gólfinu. Í þriðju lyftu reyndi Guðfinnur við 330 kg sem vildu ekki upp að þessu sinni. Samanlagður árangur varð 1030 kg sem tryggði Guðfinni silfur í flokknum. Innilega til hamingju með Íslandsmetið og verðlaunin, Guðfinnur !