

Það voru tvær stöllur úr íslenska hópnum sem mættu á keppnispallinn í dag.
Elín Melgar Aðalheiðardóttir keppir í -69 kg opnum flokki. Hún tók seríuna 100 kg / 105 kg / 105 kg. Elín reyndi tvisvar við 105 kg en þau vildu ekki upp í dag. Innilega til hamingju með mótið, Elín !
Guðný Ásta Snorradóttir keppir í +84 kg opnum flokki. Hún tók seríuna 112,5 kg / 117,5 kg / 125 kg. Síðasta lyfta var tilraun til bætingar á eigin Íslandsmeti í M1 og M2 um 2,5 kg en því miður gekk það ekki þennan daginn. Innilega til hamingju með mótið, Guðný Ásta !
Á morgun, föstudaginn 7. ágúst, hefst búnaðarhluti keppninnar. Það verður fjölmennur hópur sem mætir á keppnispallinn fyrir hönd Íslands þann daginn:
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Laufey Kristjánsdóttir, -69 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Sesselja S. Ómarsdóttir, -76 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Sigríður Á. Andersen, -63 kg öldungaflokkur 2 (master 2), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Rebekka Sylvía Ragnarsdóttir, -57 kg öldungaflokkur 1 (master 1), kl. 12.00 að íslenskum tíma.
Hrefna Rósa Sætran, -69 kg öldungaflokkur 1 (master 1), kl. 13.00 að íslenskum tíma.
Davíð Þór Peñalver, -93 kg öldungaflokkur 1 (master 1), kl. 16.00 að íslenskum tíma.
Beint streymi í Goodlift TV.
