Í dag átti Ísland þrjá fulltrúa á kepnispallinum.
Benóný Helgi Benónýsson keppir í -93 kg unglingaflokki (junior). Flokkurinn var feykisterkur og mikil barátta. Benóný Helgi tók seríuna 190 kg / 200 kg / 202,5 kg. Lyfta tvö gekk ekki sem skyldi en Benóný kom ákveðinn í þriðju og massaði hana. Sú lyfta tryggði honum silfur í flokknum og tvö ný Íslandsmet í unglinga- og opnum flokki. Innilega til hamingju með metin, silfrið og mótið, Benóný Helgi !
Þórður Skjaldberg keppir í -105 kg unglingaflokki (junior). Hann tók seríuna 170 kg / 175 kg / 182,5 kg. Þriðja lyfta var tilraun til persónulegrar bætingar um 2,5 kg en því miður fór stöngin ekki upp í þetta skiptið. Innilega til hamingju með mótið, Þórður !
Jón Sigurður Gunnarsson keppir í -59 kg opnum flokki. Hann tók seríuna 110 kg / 117,5 kg / 117,5 kg. Því miður þá gekk ekki alveg upp með lyftu tvö og þrjú þennan daginn. Innilega til hamingju með mótið, Jón Sigurður !
Á morgun, fimmtudaginn 6. ágúst, mæta tveir Íslendingar á keppnispallinn:
Elín Melgar Aðalheiðardóttir, -69 kg opinn flokkur, kl. 09.00 að íslenskum tíma.
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg opinn flokkur, kl. 13.00 að íslenskum tíma.
Beint streymi í Goodlift TV.

