Það var mjög svo fjölmennur hópur frá Íslandi sem mætti á keppnispallinn í gær.
Guðný Ásta Snorradóttir keppir í +84 kg öldungaflokki 2. Hún tók seríuna 137,5 kg / 142,5 kg / 147,5 kg. Síðasta lyfta var persónuleg bæting um 2,5 kg og tryggði lyftan Guðnýju silfur í flokknum sem og annað sætið í heildarkeppni öldungaflokks 2. Innilega til hamingju með bætinguna, silfrið og mótið, Guðný Ásta !
Laufey Kristjánsdóttir keppir í -69 kg öldungaflokki 2. Hún tók seríuna 85 kg / 87,5 kg / 92,5 kg. Síðasta lyfta var dæmt ógild af kviðdómi en önnur lyfta tryggði henni nýtt Íslandsmet og brons í flokknum. Innilega til hamingju með metið, bronsið og mótið, Laufey !
Sesselja S. Ómarsdóttir keppir í -76 kg öldungaflokki 2. Hún tók seríuna 100 kg / 105 kg / 107,5 kg. Fyrsta lyfta flaug upp en gekk ekki alveg með seinni tvær, á þær inni. Innilega til hamingju með mótið, Sesselja !
Sigríður Á. Andersen keppir í -63 kg öldungaflokki 2. Hún tók seríuna 72,5 kg / 75 kg / 82,5 kg. Fyrsta lyfta var dæmt ógild en Sigríður negldi hinar tvær. Þriðja lyfta tryggði henni nýtt Íslandsmet og brons í flokknum. Innilega til hamingju með metið, bronsið og mótið, Sigríður !
Árangur þeirra fjögurra, Guðnýjar, Laufeyjar, Sesselju og Sigríðar tryggði síðan Íslandi þriðja sætið í liðakeppni öldungaflokks 2.
Rebekka Sylvía Ragnarsdóttir keppir í -57 kg öldungaflokki 1. Hún tók seríuna 80 kg / 80 kg / 82,5 kg. Fyrstu tvær gengu brösuglega en Rebekka negdli þá þriðju sem tryggði henni brons í flokknum. Innilega til hamingju með bronsið og mótið, Rebekka !
Hrefna Rósa Sætran keppir í -69 kg öldungaflokki 1. Hún tók seríuna 90 kg / 95 kg / 100 kg. Síðasta lyfta var bæting um heil 7,5 kg og sú lyfta tryggði Hrefnu silfur í flokknum. Innilega hamingju með bætinguna, silfrið og mótið, Hrefna !
Davíð Þór Peñalver keppir í -93 kg öldungaflokki 1. Hann tók seríuna 175 kg / 185 kg / 190 kg. Flott fyrsta lyfta hjá Davíð var nýtt Íslandsmet í flokknum. Því miður gengu hinar ekki alveg upp. Innilega til hamingju með metið og mótið, Davíð !


