Á keppnispalllinn í dag mætti einn úr íslenska hópnum. Það var hann Anton Haukur Þórlindsson. Hann keppir í -83 kg drengjaflokki (sub-junior). Anton tók seríuna 180 kg / 187,5 kg / 187,5 kg. Fyrsta lyfta var örugg og nýtt Íslandsmet og Norðurlandamet. Í lyftu tvö og þrjú munaði hársbreidd að Anton Haukur næði að læsa. Mikil barátta var um fyrsta sætið en fyrsta lyfta Antons Hauks tryggði honum silfur í flokknum. Innilega til hamingju með metin, silfrið og mótið, Anton Haukur !
Sunnudagurinn 9. ágúst, er síðasti dagur Evrópumeistaramótsins. Þá munu þrír Íslendingar mæta á keppnispallinn:
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Elín Melgar Aðalheiðardóttir, -69 kg opinn flokkur, kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Laufey Agnarsdottir, +84 kg opinn flokkur, kl. 13.00 að íslenskum tíma.
Beint streymi í Goodlift TV.

