Í dag mættu fimm Íslendingar á keppnispallinn í Druskininkai.
Tara Szklenar var fyrst á pallinn. Hún keppir í -57 kg telpnaflokki (sub-junior). Hún tók seríuna 65 kg / 70 kg / 72,5 kg. Því miður var síðasta lyfta ekki gild en lyfta tvö var glæsilegt nýtt Íslandsmet og silfur í flokknum. Innilega til hamingju með metið, silfrið og mótið, Tara !
Grímur Nói Pétursson keppir í -93 kg drengjaflokki (sub-junior). Hann tók seríuna 152,5 kg / 160 kg / 160 kg. Lyftur tvö og þrjú voru tilraunir til persónulegrar bætingar en gekk ekki alveg upp í þetta skiptið. Innilega til hamingju með mótið, Grímur !
Svanur Bergvins Guðmundsson keppir í -93 kg drengjaflokki (sub-junior). Hann tók seríuna 162,5 kg / 167,5 kg / 170 kg. Allar þrjár lyfturnar voru ný Íslandsmet og síðasta lyfta skilaði Svani Evrópumeistaratitlinum í sterkum flokki. Innilega til hamingju með gullið, metin og mótið, Svanur Bergvins !
Eva Dís Valdimarsdóttir keppir í -57 kg unglingaflokki (junior). Hún tók seríuna 72,5 kg / 75 kg / 77,5 kg. Því miður var þriðja lyfta ekki gild. Innilega til hamingju með mótið, Eva Dís !
Herdís Anna Ólafsdóttir keppir í -63 kg unglingaflokki (junior). Hún tók seríuna 70 kg / 75 kg / 75 kg. Herdís reyndi tvisvar við persónulega bætingu með 75 kg en gekk ekki þennan daginn. Innilega til hamingju með mótið, Herdís Anna !
Á morgun, miðvikudaginn 5. ágúst, mæta þrír keppendur á pallinn:
Benóný Helgi Benónýsson, -93 kg unglingaflokkur (junior), kl. 09.00 að íslenskum tíma.
Þórður Skjaldberg, -105 kg unglingaflokkur (junior), kl. 09.00 að íslenskum tíma.
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 14.00 að íslenskum tíma.
Beint streymi í Goodlift TV.

