

Dagana 3. – 6. ágúst er keppt í klassískri bekkpressu á Evrópumeistaramótinu í bekkpressu.
Fyrstur á keppnispallinn af íslenska hópnum var Benóný Benónýsson. Hann keppir í -93 kg öldungaflokki 2 (master 2). Hann tók seríuna 137.5 kg / 145 kg / 150 kg. Síðasta lyftan var nýtt Íslandsmet í flokknum. Innilega til hamingju með metið og mótið, Benóný !
Næstur á keppnispallinn var Davíð Þór Peñalver. Hann keppir í -93 kg öldungaflokki 1 (master 1). Hann tók seríuna 137,5 kg / 145 kg / 150 kg og þrjú hvít ljós í öllum lyftum. Síðasta lyfta bara rétt undir hans besta. Innilega til hamingju með mótið, Davíð Þór !
Á morgun þriðjudaginn 4. ágúst keppa hvorki né minna en fimm Íslendingar. Hér eru tímasetningar:
Tara Szklenar, -57 kg telpnaflokkur (sub-junior), kl 07.00 að íslenskum tíma.
Grímur Nói Pétursson, -93 kg drengjaflokkur (sub-junior), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Svanur Bergvins Guðmundsson, -83 kg drengjaflokkur (sub-junior), kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Eva Dís Valdimarsdóttir, -57 kg unglingaflokkur (junior), kl. 12.30 að íslenskum tíma.
Herdís Anna Ólafsdóttir, -63 kg unglingaflokkur (junior), kl. 15.00 að íslenskum tíma.
Beint streymi í Goodlift TV.
