Skip to content

Dómarapróf – Skráning

Skráning er hafin í dómarapróf KRAFT. Prófað verður skriflega úr keppnisreglum IPF og síðan fer fram verklegt próf í vigtun og dómgæslu. Verklegi hluti prófsins fer fram 19. október á Æfinga- og byrjendamótinu í kraftlyftingum. Daginn á undan, laugardaginn 18. október, verður skriflegi hluti prófsins haldinn í húsnæði ÍSÍ í Laugardalnum. Nákvæm tímasetning verður auglýst síðar. Því miður þurfti að aflýsa dómaraprófinu sem átti að vera í febrúar vegna veðurs. Kandítatar sem voru búnir að skrá sig í það hafa forgang í þetta próf. Það er fjöldatakmarkanir í dómarapróf en það kemur betur í ljós þegar ljóst er hve margir vilja þreyta prófið. 

KRAFT áskilur sér þann rétt að takmarka fjölda próftaka við einn frá hverju félagi ef fjöldi þeirra verður of mikill.

Skráningu skal senda á kraft@kraft.is með afriti á helgih@internet.is fyrir miðnætti 28. september. Í skráningu skal koma fram nafn próftaka, kennitala, félag og símanúmer. Prófgjald er 12.000 kr. og greiðist inn á reikning KRAFT 552-26-007004
kt. 700410-2180.