Skip to content

Breyting á mótaskrá (Bikarmeistaramót unglinga)

Mótanefnd KRAFT óskaði eftir samþykki stjórnar KRAFT um að flýta Bikarmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyftingum um eina viku. Stjórn KRAFT hefur samþykkt beiðnina. Fyrri dagsetning var 3. október en ný dagsetning er sunnudagurinn 27. september. Mótshaldari er, eins og áður, lyftingadeild KA.