Þann 9. ágúst sl. var bikarmótið í kraftlyftingum með búnaði (aldursflokkaskipt) haldið í Njarðvíkum af Lyftingadeild UMFN-Massa. Mótið var fámennt en góðmennt. Fjöldi Íslandsmeta voru slegin ásamt persónulegum bætingum. Aron Ingi Gautason frá Stjörnunni (-83 kg opinn flokkur) sló tvö Íslandsmet í hnébeygju. Ásmundur Rafnar Ólafsson frá Massa (-120 kg opinn flokkur) tók persónulegar bætingar í hnébeygju, réttstöðulyftu og í samanlögðu. Elsa Pálsdóttir frá Massa (-76 kg M3 flokkur) sló fimm Íslandsmet í öllum greinum og í samanlögðu. Hörður Birkisson frá Massa (-74 kg M3 flokkur) sló fjögur Íslandsmet í hnébeygju, réttstöðulyftu og í samanlögðu.
Upptöku af mótinu má finna á YouTube rás KRAFT : Bikarmótið í kraftlyftingum með búnaði

