Skráning er hafin á Bikarmót KRAFT í kraftlyftingum og klassískum kraftlyftingum 20.og 21.nóv nk.
Kraftlyftingadeild Ármanns er mótshaldari og keppnin fer fram í heilsuræktinni Spörtu, Bíldshöfða 9.
Skráningarfrestur er til miðnættis 30.okt og skal senda skráningu til tojo52@rvkskolar.is með afrit til kraft@kraft.is
Frestur er svo til miðnættis 6.nóv til að breyta skráningu og greiða keppnisgjald.
Gjaldið er 7500 ISK og skal greitt inn á reikning KRAFT 552-26-007004, kt . 700410-2180. Sendið afrit af kvittun með nafn félagsins á kraft@kraft.is
Í skráningu skal koma fram nafn félags og nafn og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar, nafn, kennitala og þyngdarflokk keppanda og skal taka skýrt fram í hvaða keppni viðkomandi er skráður; með eða án búnaðar.
Skrá skal líka alla aðstoðarmenn sem ætla að fá aðgang að vigtun og upphitun.
Á öllum meistaramótum gildir sú regla að keppendur hafi verið skráðir í kraftlyftingafélagi í amk þrjá mánuði.
Við hvetjum dómara til að skrá sig til leiks á sömu netföngum eða HÉR