Í gær fór fram Bikarmótið í klassískum kraftlyftingum. Mótið var haldið í Digranesinu af Kraftlyftingadeild Breiðabliks. Alls voru 69 keppendur í öllum aldursflokkum, yngsti fæddur 2010 og elsti fæddur 1942. Fjöldi Íslandsmeta féllu og margir bættu sinn persónulega árangur.
Stöllurnar úr Breiðabliki, Kristrún Sveinsdóttir, -57 kg flokki opnum, og Kolbrún Katla Jónsdóttir, +84 kg flokki opnum, bættu báðar Íslandsmet í hnébeygju. Kristrún með 138 kg og Kolbrún með 218 kg. Alexander Pétur Kristjánsson úr Stjörnunni í -74 kg flokki opnum tvíbætti Íslandsmetið í réttstöðulyftu og endaði með 255 kg. Stefán Gunnlaugur Jónsson úr Stjörnunni í +120 kg opnum sló nýtt Íslandsmet í bekkpressu með léttri 211 kg lyftu.
Í telpnaflokki sló Tara Szklenár úr Ármanni í -57 kg flokki fjögur Íslandsmet og Eva Dís Valdimarsdóttir úr Lyftingafélagi Kópavogs í -63 kg flokki tvíbætti Íslandmet í réttstöðulyftu og endaði með glæsileg 150 kg.
Í drengjaflokki í -93 kg flokki, tvíbætti Helgi Kristberg Ólafsson úr Kraftlyftingafélagi Mosfellsbæjar metið í réttstöðulyftu og endaði með 270 kg.
Í öldungaflokki kvenna M2 í -57 kg flokki var Íslandsmetið í bekkpressu slegið þrisvar af Kristínu Huld Þorvaldssdóttur úr Kraftfélaginu. Laufey Kristjánsdóttir í -69 kg flokki M2 úr Kraftfélaginu sló samtals þrjú Íslandsmet í hnébeygju og réttstöðulyftu. Sigríður Snorradóttir í -76 kg flokki M2 úr Kraftfélaginu, sló nýtt Íslandsmet í bekkpressu með 75 kg.
Í öldungaflokki karla sló Björn Margeirsson úr Ármanni í -74 kg flokki M1 nýtt Íslandsmet í hnébeygju með 185,5 kg lyftu. Í -83 kg flokki M1 tvíbætti Trausti Traustason úr Massa Íslandsmetið í réttstöðulyftu og endaði með 240 kg. Í sama flokki tvíbætti Finnur Freyr Eiríksson úr Kraftfélaginu Íslandsmetið í bekkpressu og endaði með 137,5 kg. Baldur Freyr Óskarsson úr Ármanni í +120 kg flokki M1 bætti Íslandsmetið í réttstöðulyftu og tók 240 kg. Í +120 kg flokki M2 margbætti Dagbjartur Finnsson úr Stjörnunni Íslandsmet í öllum greinum og endaði með 222,5 kg í hnébeygju, 145 kg í bekkpressu og 232,5 kg í réttstöðulyftu.
Sjá öll úrslit HÉR.
Stigahæstu einstaklingar urðu þessir:
KVENNAFLOKKUR
Konur opinn flokkur: Kristrún Sveinsdóttir (BRE)
Konur Junior: Herdís Anna Ólafsdóttir (LFK)
Konur Sub-junior: Eva Dís Valdimarsdóttir (LFK)
Konur Master: Sigríður Snorradóttir (KFR)
KARLAFLOKKUR
Karlar opinn flokkur: Alexander Örn Kárason (BRE)
Karlar Junior: Benony Helgi Benonysson (MOS)
Karlar Sub-junior: Helgi Kristberg Ólafsson (MOS)
Karlar Master: Trausti Traustason (MAS)