Í gær fór fram Bikarmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum í opnum flokki. Mótið var haldið í Reykjanesbæ af Lyftingadeild UMFN – Massa. Mörg Íslandsmet féllu og margir bættu sinn persónulega árangur.
Stigahæsti keppandinn í kvennaflokki varð Kristrún Ingunn Sveinsdóttir, Breiðabliki. Stigahæsti keppandinn í karlaflokki varð Friðbjörn Bragi Hlynsson, Stjörnunni.
KRAFT óskar öllum keppendum innilega til hamingju með mótið.
Úrslit mótsins má finna HÉR.
Upptöku af mótinu má finna HÉR.
