Skip to content

Bikarmeistaramótið í kraftlyftingum með búnaði

Bikarmeistaramótið í kraftlyftingum með búnaði var haldið í gær. Mótshaldari var Lyftingadeild Stjörnunnar og mótsstaður Miðgarður í Garðabæ. Mótið var fámennt en góðmennt og frábær andi í keppendum sem og áhorfendum. Alex Cambray Orrason (KA) bætti sitt eigið Íslandsmet í hnébeygju í opnum flokki um 0,5 kg þegar hann lyfti 358 kg. Bikarmeistarar urðu Alex Cambray Orrason (KA) og Jóhanna Rún Steingrímsdóttir (ÁRM). 

ÚRSLIT.