Skráning er hafin á Bikarmeistaramót unglinga í klassískum kraftlyftingum sem haldið verður sunnudaginn 27. september. Mótshaldari er Lyftingadeild KA og verður mótið haldið í Íþróttahúsinu við Skólastíg, Akureyri Endanleg tímaáætlun auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur: nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn (nöfn, netföng og símanúmer). Nafn, netfang og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal einnig fylgja.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda á netfangið lyftingar@ka.is með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti sunnudaginn 6. september. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk er til miðnættis sunnudaginn 13. september. Keppnisgjald er 9.000 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.
