Uppfærðar mótareglur fyrir næsta ár verða birtar áður en skráningarfrestur fyrir ÍM í klassískri bekkpressu rennur út. Athygli er vakin á því að í uppfærðum mótareglum munu verða sett lágmörk til þátttöku í opnum flokki á meistaramótum KRAFT, bæði í þrílyftu og einna lyftu mótum. Keppendur í opnum flokki sem hafa hugsað sér að taka þátt á ÍM í klassískri bekkpressu eru beðnir um að hinkra með skráningu þar til uppfærðar mótareglur hafa verið birtar.
