Skip to content

Afreksmiðstöð Íslands stofnuð

Í hádeginu í dag, 5. maí, var hátíðleg stund í anddyri Laugardalshallar þegar Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) var formlega stofnuð. Hún verður stjórnstöð afreksíþróttastarfs á Íslandi og faglegur vettvangur fyrir afreksfólk ólíkra íþrótta. Kristín Birna Ólafsdóttir sem hefur unnið á afrekssviði ÍSÍ tekur við af Vésteini Hafsteinssyni sem afreksstjóri ÍSÍ en Vésteinn verður ráðgjafi hjá miðstöðinni. Starf AMÍ verður í náinni samvinnu við sérsambönd og íþróttafélög landsins, framhaldsskóla, háskóla og vísindasamfélag sem og sérfræðinga í íþrótta- og heilsufræðum. Það eru sannarlega spennandi tímar framundan og með stofnun AMÍ verður sköpuð besta mögulega umgjörð í kringum afreksfólk í íþróttum og þannig hjálpa þeim að komast í fremstu röð. 

Hvetjum alla til að kynna sér frekar Afreksmiðstöð Íslands á heimasíðu hennar : afreksmidstodislands.is