

Í gær laugardaginn 23. maí fór fram æfinga- og byrjendamót KRAFT. Mótið var einnig lágmarkamót. Mótshaldari var lyftingadeild KA og var mótið haldið í íþróttahúsinu við Skólastíg á Akureyri. Góður hópur af keppendum á öllum aldri tók þátt, sumir að stíga sín fyrstu skref en aðrir að taka lágmörk fyrir erlend stórmót. Dómarapróf fyrir nýja landsdómara KRAFT var haldið samhliða mótinu, lesið próf fyrr um morguninn og verklegi hlutinn á mótinu sjálfu. KRAFT eignaðist einn nýjan landsdómara en það er hún Íris Hrönn Garðarsdóttir.
Stigahæstu einstaklingar á mótinu voru:
KLASSÍSKAR KRAFTLYFTINGAR
Guðrún Heiða Hjaltadóttir (STJ)
Aron Friðrik Georgsson (STJ)
KRAFTLYFTINGAR MEÐ BÚNAÐI
Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran (KFR)
Davíð Þór Penalver (MAS)
