Skip to content

ÍM – skráning hafin

  • by

Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótin í kraftlyftingum með og án búnaðar í opnum flokki og aldurstengdum.
Mótin fara fram í Njarðvíkum dagana 12 og 13 september nk. Planið er að keppa í klassískum á laugardeginum og búnaði á sunnudeginum en endanlegar tímasetningar koma þegar skráning liggur fyrir.
Skráningarfrestur er til miðnættis 23 ágúst og skal senda skráningu til kraft@kraft.is og massi@umfn.is  
Keppnisgjald er 7000 kr og skal greitt inn á 552-26-007004  kt 700410-2180 fyrir miðnætti 30.ágúst. Kvittun skal senda á kraft@kraft.is og skal nafn félags koma fram. Skráning tekur ekki gildi fyrr en gjaldið hefur verið greitt.

Við skráningu skal tekið skýrt fram hvort verið sé að skrá á klassíska mótið eða búnaðarmótið. Taka skal fram nöfn, kennitölur og þyngdarflokk keppenda og hvort viðkomandi keppir í opnum flokki eða aldurstengdum. Skrá skal nöfn tilnefndra dómara og nöfn allra aðstoðarmanna. Auk þess skal taka fram nafn og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar. Eingöngu þeir sem eru skráðir fá aðgang að keppnissvæði og upphitun. Vegna fjöldatakmarkanna áskilur KRAFT sér rétt til að takmarka fjölda aðstoðarmanna ef þess þarf. 

Framkvæmd mótsins verður í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur og allt kapp lagt á að tryggja öryggi keppenda og starfsmanna. Félög og keppendur verða þess vegna að búa sig undir að fylgja takmarkanir og hömlur sem kunna að verða settar og verða birtar á kraft.is eins tímanlega og hægt er. 
Stjórn KRAFT mun á næstu dögum senda frá sér reglugerð og leiðbeiningar um örugga iðkun og keppni í kraftlyftingum, en þær eru í vinnslu í samráði við ÍSÍ og sóttvarnarlækni.
Mótahald og iðkun er háð því að reglurnar hljóti samþykkis þeirra.