Close

Not a member yet? Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Forgot your password?

NPF  // Posts tagged as "NPF"

15 apríl Posted by admin in Frettir | Comments

Norðurlandamót – heildarúrslit

Hér má sjá heildarúrslit Norðurlandamóts í drengja-, stúlkna- og unglingaflokkum. Hér hafa margir náð góðum árangri og eiga eflaust eftir að láta að sér kveða á komandi árum.  Það getur t.d. orðið erfitt að toppa nýja Norðurlandametið í réttstöðulyftu í -93,0 kg unglingaflokki karla! ÚRSLIT

Read more...

14 apríl Posted by admin in Frettir | Comments

Árangur Guðrúnar og Ólafs á Norðurlandamóti unglinga

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Ólafur Hrafn Ólafsson hafa lokið keppni á Norðurlandamóti unglinga sem fram fór í Noregi í dag. Þau koma heim á morgun, án verðlauna en reynslunni miklu ríkari. Guðrún Gróa tók 150 kg í hnébeygju og fór tvisvar upp með 167,5 of grunnt og fékk ógilt í bæði skiptin. Á bekknum gekk...

Read more...

13 apríl Posted by admin in Frettir | Comments

Guðrún Gróa og Ólafur Hrafn keppa á morgun

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Ólafur Hrafn Ólafsson fóru til Noregs í morgun í fylgd Grétars Hrafnssonar landsliðsþjálfara. Þar keppa þau á morgun á Norðurlandamóti unglinga.

Read more...

26 mars Posted by admin in Frettir | Comments

Auðunn með tvö Norðurlandamet

Auðunn Jónsson, Íslandsmeistari í kraftlyftingum, bætti tvö Norðurlandamet í öldungaflokki karla +120,0 kg um helgina. Réttstöðulyftan 360,5 kg og samanlagður árangur hans 1008,0 kg eru ný met.

Read more...

11 jan. Posted by admin in Frettir | Comments

Mótaskrá NPF

Kraftlyftingasamband Norðurlanda hefur birt mótaskrá fyrir árin 2012 – 2017. Þar kemur m.a. fram að Norðurlandamót unglinga verður haldið á Íslandi 2013.

Read more...

21 des. Posted by Gry in Frettir | Comments

Norðurlandamet

Stjórn NPF hefur birt viðmið fyrir Norðurlandamet í nýjum þyngdarflokkum. Viðmiðin gilda frá 1.janúar 2011 og búið er að uppfæra þau met sem hafa verið sett síðan. Einn Íslendingur

Read more...

09 apríl Posted by Gry in Frettir | Comments

Norðurlandamót unglinga

Framundan er Norðurlandamót unglinga 2011. Það fer fram í Nässjö í Svíþjóð laugardaginn 23. apríl nk og mæta 47 ungmenni frá öllum norðurlöndunum til leiks, þar af 12 keppendur í kvennaflokki. Einn íslenskur keppandi tekur þátt að þessu sinni, Grétar Skúli Gunnarsson, KFA. Grétar á best 762,5 kg sem hann lyfti á Akureyrarmótinu í fyrra....

Read more...

31 ág. Posted by admin in Frettir | Comments

Ný stjórn NPF

Þing NPF (Nordic Powerlifting Federation) fór fram í tengslum við Norðurlandamótið í kraftlyftingum um helgina. Linda Höiland, Noregi, var kosin nýr forseti sambandsins. Robert Ericsson, Svíþjóð, var settur framkvæmdastjóra til eins árs eða þar til nýr verður kosinn 2011. Fulltrúi Íslands í stjórn sambandsins er Gry Ek, ritari KRAFT.

Read more...

29 ág. Posted by Gry in Óflokkað | Comments

María Norðurlandameistari í bekkpressu

María Guðsteinsdóttir, Ármanni, bætti í dag annan titil i safnið Þegar hún varð Norðurlandameistari kvenna í bekkpressu í -75,0 kg flokki. Hún lyfti 107,5 kg sem er nýtt Íslandsmet.   Stigaverðlaun kvenna hlaut Susse Hougaard, Danmörk, sem lyfti 140 kg i -60,0 kg flokki. Stefan Jamroz, SviÞjoð, sigraði i karlaflokki með 303 kg i -110 kg flokki....

Read more...

28 ág. Posted by Gry in Óflokkað | Comments

Auðunn með silfrið

Auðunn Jónsson keppti á Norðurlandamótinu í kraftlyftingum  í dag og kemur heim með silfurverðlaun í +125,0 flokki karla. Í hnébeygju lyfti Auðunn best 380 kg í fallegri lyftu og hann átti mjög góða tilraun við 395, en fékk ógilt 1-2 vegna dýptar. Í bekkpressu endaði hann á byrjunarþyngdinni 255,0 kg. Hann reyndi við Íslandsmet í síðustu lyftunni með...

Read more...