Close

Not a member yet? Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Forgot your password?

14 feb. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

Fleiri myndir frá ÍM í bekk

Fínar myndir frá bekkpressumótinu á Akranesi. Myndasmiður Sigurjón Pétursson

Lesa meira...

14 feb. Innsent af Gry i Frettir | Ummæli

Þinggerðin komin á netið

Fundargerð 2. Kraftlyftingaþings haldið á Akranesi 28.janúar sl. er komin á netið undir Um Kraft > fundargerðir Á sama stað má finna fjárhagsáætlun ársins 2012

Lesa meira...

31 jan. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

Skýrsla stjórnar fyrir árið 2011

SKÝRSLA STJÓRNAR FLUTT Á 2 KRAFTLYFTINGAÞINGI 28. JANÚAR 2012 er komin á vefinn.

Lesa meira...

31 jan. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

Stjórn KRAFT endurkjörin

Stjórnarkjör fór fram á kraftlyftingaþinginu um síðustu helgi. Sigurjón Pétursson var endurkjörinn formaður KRAFT til eins árs. Stjórnarmenn til tveggja ára voru kosnir: Guðjón Hafliðason, Birgir Viðarsson, Kári Rafn Karlsson og Gry Ek. Varamenn til eins árs voru kosnir: Auðunn Jónsson, Óskar Ingi Víglundsson og Hulda Pjetursdóttir.

Lesa meira...

31 jan. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

Kraftlyftingar á RÚV

RÚV sýndi í kvöld þátt um atburði á Reykjavik International Games 2012, meðal annars kraftlyftingar. Hér má sjá þáttinn í heild sinni, en umfjöllun um réttstöðumót Ármanns byrjar á 31.mínútu

Lesa meira...

28 jan. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

Íslandsmeistaramót í bekkpressu – úrslit

Vöðvamassastuðullinn á Akranesi hækkaði svo um munaði í dag þegar kraftlyftingamenn og -konur af öllu landinu komu þar saman til að þinga og keppa um íslandsmeistaratitlana í bekkpressu. Hið fámenna kraftlyftingafélag Akraness var gestgjafi og var framkvæmd mótsins og umgjörð þeim til míkils sóma. Stigaverðlaunin unnu þau María Guðsteinsdóttir, Ármanni og Auðunn Jónsson, Breiðablik og...

Lesa meira...

28 jan. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

ÍSÍ 100 ára

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er 100 ára í dag. Þess var minnst á kraftlyftingaþinginu á Akranesi og sendi kraftlyftingaþingið ÍSÍ heillaóskaskeyti í tilefni af þessum tímamótum. Formaður og varaformaður Kraft voru fulltrúar okkar á móttöku í Ráðhúsi Reykjavíkur í tilefni dagsins og tekur Kraft þátt í sameiginlegri afmælisgjöf sem öll sérsambönd færa ÍSÍ.

Lesa meira...

26 jan. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

Íslandsmeistaramót í bekkpressu á laugardag

Íslandsmeistaramótið í bekkpressu fer fram í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum á Akranesi laugardaginn 28.janúar nk. Keppni hefst kl. 12.00 í kvennaflokki og karlaflokkum 66 – 74 kg. Í karlaflokkum 93 – 120+  kg er áætlað að keppni hefjist kl. 15.00. Aðgangur er ókeypis fyrir áhorfendur.

Lesa meira...

24 jan. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

Kraftlyftingaþing – breytt tímasetning!

Þingsetning kl. 9.30!

Lesa meira...

23 jan. Innsent af admin i Frettir | Ummæli

ÍM í bekkpressu – tímasetningar

Búið er að skipta keppendum í holl og verður skipting og tímasetning sem hér segir:

Lesa meira...