Opna Evrópumótið í bekkpressu lauk í Slóvakíu um helgina. Evrópumeistari karla varð finninn Tuomas Korkia-Aho sem lyfti 342,5 kg í +125 flokki, en það er jafnframt nýtt heimsmet unglinga. Í kvennaflokki sigraði pólverjinn Justina Kozdryk með 120,0 kg í 48 kg flokki. Hér má sjá heildarúrslit
Fannar Dagbjartsson hafði því miður ekki erindi sem erfiði á EM öldunga sem lauk í Tékklandi í dag. Hann féll úr í hnébeygju og fékk heldur ekki gilda lyftu á bekknum. Reyndar var míkið mannfall í flokki hans, -110,0 kg M1, fjórir keppendur féllu úr keppni. Sigurvegari var svíinn Håkan Persson með 815,0 kg. HEILDARÚRSLIT Menn...
EM unglinga lauk um helgina og var árangurinn gríðarlega góður í mörgum, ef ekki öllum flokkum. Mörg met voru sett á mótinu. HÉR má sjá heildarúrslit.
Skemmtilegt og vel sótt kraftlyftingamót Kópavogs lauk í Smáranum fyrir stundu. 16 keppendur luku keppni. Flestir bætti árangur sinn, sumir svo um munaði og voru fjölmörg Íslandsmet sett. María Guðsteinsdóttir, Ármanni sigarði í öllum greinum og vann stigabikar kvenna með 441,0 kg í -67,5 kg flokki. Stigabikar karla tók Fannar Dagbjartsson, Ármanni, með 770 kg...
Copyright © 2010 - KRAFTLYFTINGASAMBAND ÍSLANDS - Webmaster@kraft.is