Góður félagi okkar, Guðmundur Stefán Erlingsson frá Grindavík, fylgir í dag unnustu sinni, Sylvíu Kristínu Sigurþórsdóttur, til grafar. Sylvía varð bráðkvödd á heimili þeirra, og varð öllum harmdauði. Stjórn KRAFT hefur sent honum og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur í nafni allra félagsmanna, enda vitum við að Guðmundur á ótal vini innan KRAFT og nýtur mikillar virðingar og vinsælda. Hugur...
Sigurjón Pétursson, formaður KRAFT, er sextugur í dag. Stjórn KRAFT, fyrir hönd kraftlyftingaáhugamanna allra, sendir honum heillaóskir á þessum tímamótum. Kveðjunni fylgja þakkir fyrir fórnfúst starf í þágu KRAFT, kraftlyftinga- og íþróttaáhugamönnum öllum í landinu til heilla. Kveðjunni fylgir líka ábending um að reglubundin styrktarþjálfun er undirstaða heilbrigðis á efri árum
EM öldunga hefst í Tékklandi 22. júni. Fannar Gauti Dagbjartsson keppir fyrir hönd Íslands í -110,0 kg flokki karla 40 – 49 ára laugardaginn 26. júni. Fannar hefur undirbúið sig vel undir mótið og ætti að geta barist um verðlaun í þessum fjölmenna flokki á góðum degi. Vonandi situr Kópavogsmótið ekki lengur í honum. Við munum fylgjast náið...
Ég er fæddur árið 1993 og mun væntanlega keppa í -110kg fl.
Copyright © 2010 - KRAFTLYFTINGASAMBAND ÍSLANDS - Webmaster@kraft.is