Alþjóða kraftlyftingasambandið hefur birt listann yfir bestu kraftlyftingamenn og -konur ársins 2011. Hér má sjá listann: http://www.powerlifting-ipf.com/336.html Þar er gaman að finna Auðunn Jónsson, Breiðablik, í 10.sæti í +120 kg flokki. Það var frábær árangur Auðuns á Evrópumótinu sl. sumar sem kom honum þangað. María Guðsteinsdóttir, Ármanni, er í 25.sæti í -63,0 kg flokki kvenna...
Stjórn Kraft óskar öllum sínum félögum og velunnurum gleði og heilsu á nýju ári. Áramót gefa tækifæri til að horfa í tvær áttir, að gleðjast yfir afrek liðins árs og setja stefnuna á ný markmið. Stjórn Kraft valdi Maríu og Fannar kraftlyftingafólk ársins 2011, en margir fleiri eiga heiður skilið fyrir mikla vinnu og góðar...
Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands boðar til kraftlyftingaþings laugardaginn 28.janúar 2012. Þingið verður haldið í fundarsal í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum á Akranesi og hefst kl. 17.00. Málefni sem aðildarfélög eða sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu skulu tilkynnt stjórn KRA minnst 21 degi fyrir þingið, smkv 10.gr. laga KRA. Kjörbréf munu berast sambandsaðilum í upphafi...
Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands hefur valið Maríu Guðsteinsdóttur, Ármanni og Fannar Gauta Dagbjartsson, Breiðablik, kraftlyftingakonu og -mann ársins 2011.
UMF Skallagrímur í Borgarnesi hefur stofnað nýja deild og nefnt „Lyftinga- og líkamsræktardeild UMF Skallagríms“. Á stefnuskrá deildarinnar er m.a. ástundun og keppni í kraftlyftingum og hefur deildin sótt um inngöngu í Kraftlyftingasamband Íslands. Stofnfundurinn fór fram þriðjudaginn 13.desember sl. og var myndin tekin við það tækifæri.
Skráning er hafin á fyrsta mót 2012, réttstöðumótið á Reykjavik International Games. Mótshaldari er Kraftlyftingadeild Ármanns. Um skráninguna gilda sömu reglur og um önnur mót og skulu félögin skrá keppendur sína á meðfylgjandi eyðublaði. Skráningar sendist á isolda@simnet.is og afrit á gry@kraft.is Skráningarfrestur er til miðnættis 7.janúar og keppnisgjald er 3000 krónur. Athugið að skrá...
Kraftlyftingadeild UMF Selfoss bauð upp á þau nýmæli á Íslandsmeistaramótinu í réttstöðu að bjóða ljósmyndara að taka myndir af öllum keppendum. Hér má sjá afraksturinn og nálgast myndunum: http://myndir.lydur.is/kraftlyftingar/
María Guðsteinsdóttir, Ármanni, hélt upp á 10-ára keppnisafmæli sitt á Selfossi í dag með því að verða íslandsmeistari í réttstöðulyftu. Hún lyfti 176,0 kg í -63,0 kg flokki, en það er nýtt Íslandsmet. Fyrir þessa lyftu hlaut hún 190,168 stig. María er glæsilegur fulltrúi kraftlyftingamanna og við óskum henni til hamingju bæði með titilinn og...
Í gær, mánudaginn 28.nóvember, var kraftlyftingadeild Gróttu formlega stofnuð á Seltjarnarnesi. Deildin hefur þegar fengið aðild að KRAFT. Formaður og varaformaður KRAFT voru viðstaddir stofnfundinum og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Formaður deildarinnar er Borghildur Erlingsdóttir Við óskum Seltirningum og Íþróttafélaginu Gróttu til hamingju með nýju deildina.
Kraftlyftingafélag Garðabæjar, Heiðrún, hlaut í dag nafnbótina „Fyrirmyndarfélag ÍSÍ“ fyrst allra kraftlyftingafélaga. Fulltrúi ÍSÍ afhenti formanni félagsins, Alexander Inga Olsen, viðurkenninguna í tengslum við Bikarmót KRAFT á Akureyri og var myndin tekin við það tækifæri . Við óskum Garðbæingum til hamingju með þennan áfanga og hvetjum önnur kraftlyftingafélög til að fylgja þeim fast á eftir.
Copyright © 2010 - KRAFTLYFTINGASAMBAND ÍSLANDS - Webmaster@kraft.is