Heimsmeitaramót öldunga í bekkpressu stendur nú yfir í Aurora í Bandaríkjunum.
Heimasíða mótsins: http://www.usaplnationals.com/2012-IPF-WMBP/
Heimsmeitaramót öldunga í bekkpressu stendur nú yfir í Aurora í Bandaríkjunum.
Heimasíða mótsins: http://www.usaplnationals.com/2012-IPF-WMBP/
Kraftlyftingafélag Akureyrar hefur með samþykki mótanefndar KRAFT ákveðið að færa Akureyrarmótið í kraftlyftingum fram til 15. júlí.
Sunnumótið verður haldið 14. júlí svo það stefnir í mikla kraftahelgi á Akureyri í sumar.
Mikill tími stjórnar KRAFT fer þessa dagana í gerð afreksstefnu fyrir sambandið. Skýr og markviss stefna í afreksmálum er skilyrði fyrir styrkveitingar og nauðsynleg til að við getum nýtt fjármagnið sem best.
Rammi afreksstefnunnar er tilbúinn, en nú er unnið efnislega í sumum köflum og skerpt á endanlegu orðalagi í öðrum.
Mörgum grundvallarspurningum þarf að svara. Skilgreina þarf nákvæmlega hvað er átt við með “afrek” og skýra þarf vinnuferla og skipulag kringum landsliðin svo eitthvað sé nefnt.
Í málum landsliðanna hefur margt verið gert undanfarið. Guðjón Hafliðason og Grétar Hrafnsson hafa tekið að sér umsjón með þjálfun landsliðsmanna og aðstoð á mótum. Haldnar hafa verið sameiginlegar æfingar með landsliðmönnum og unnið er í að tryggja þeim góða æfingaraðstöðu.
Raunhæf afreksstefna þarf svo að samræma draumsýnina við fjármagnið og mannauðinn sem er fyrir hendi, en þegar metnaðurinn er mikill getur það verið vandasamasta verkið.
Drög að afrekstefnu fyrir Kraftlyftingasambandið verða lögð fram á formannafundi sem til stendur að halda í maí.
Hér má sjá heildarúrslit Norðurlandamóts í drengja-, stúlkna- og unglingaflokkum.
Hér hafa margir náð góðum árangri og eiga eflaust eftir að láta að sér kveða á komandi árum. Það getur t.d. orðið erfitt að toppa nýja Norðurlandametið í réttstöðulyftu í -93,0 kg unglingaflokki karla!
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Ólafur Hrafn Ólafsson hafa lokið keppni á Norðurlandamóti unglinga sem fram fór í Noregi í dag. Þau koma heim á morgun, án verðlauna en reynslunni miklu ríkari.
Guðrún Gróa tók 150 kg í hnébeygju og fór tvisvar upp með 167,5 of grunnt og fékk ógilt í bæði skiptin. Á bekknum gekk allt á afturfótunum og henni mistókst þrisvar með 110,0 vegna tæknilegra mistaka. Í réttstöðulyftu tók hún 162,5 kg vel og reyndi við 170 kg í þriðju tilraun en rétt missti henni.
Guðrúnu tókst s.s. ekki að ná sínum markmiðum og ljúka keppni. Það er ekki skemmtileg reynsla, en vonandi stappa vonbrigðin stálið í Guðrúnu frekar en að draga úr henni máttinn. Nú veit hún hvað þarf að laga.
Ólafur lyfti 250 kg í hnébeygju í annari tilraun. Á bekknum lyfti hann 145,0 kg og mistókst tvisvar með 165,0 kg. Í réttstöðulyftu setti hann nýtt íslandsmet unglinga með 252,5 kg í annari tilraun. Samtals lyfti hann því 647,5 kg. Hann var ekki ánægður með beygjurnar og bekkinn, enda lyfti hann meira á Íslandsmótinu í mars.
Mótið var sterkt og dómgæsla vönduð og nákvæm.
Íslensku keppendurnir náðu ekki sínum markmiðum í þetta skiptið. Að mæta sér sterkari og reyndari andstæðingum á erlendum vettvangi er meira en að segja það og reynsla sem getur dugað menn í góðar bætingar. Þau hafa fengið verkefni til að takast á við og munu örugglega koma sterkari tilbaka næst.
Heildarúrslit verða birt um leið og þau berast.
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Ólafur Hrafn Ólafsson fóru til Noregs í morgun í fylgd Grétars Hrafnssonar landsliðsþjálfara. Þar keppa þau á morgun á Norðurlandamóti unglinga. Continue reading
Margar skemmtilegar myndir voru teknar á Íslandsmeistaramótinu í Njarðvíkum. Continue reading
Alþjóða kraftlyftingasambandið IPF hefur birt endurskoðaða starfsáætlun sína fyrir næstu þrjú ár 2012-2014.
http://www.powerlifting-ipf.com/fileadmin/data/strategic-plan.pdf
Sem fyrr er langtímamarkmiðið að kraftlyftingar verði ólympísk íþrótt, en til að svo megi verða þarf að efla sambandið og starfið á heimsvísu. Áætlunin sýnir markmiðin fyrir næstu þrjú ár og hvaða leiðir við ætlum að fara til á ná þeim.
Kraftlyftingasamband Íslands á aðilda að þessu starfi eins og reyndar allir sem vinna að framgangi íþróttarinnar innan KRAFT. Hver maður getur lagt sitt lóð á vogarskálina með því að vinna vel að sínum verkefnum, hver í sínu félagi.