Heimsmeistaramót öldunga í bekkpressu fer fram í Rödby í Danmörku 13. – 16. apríl nk.
Skráningarfrestur rennur út 13. febrúar.
Heimasíða mótsins: http://ipf-bench-2011.dk/index.php
Monthly Archives: January 2011
Íslandsmeistaramótið í bekkpressu – heildarúrslit
Íslandsmeistaramótið í bekkpressu fór fram á Akranesi í dag að viðstöddu fjölmenni.
Íslandsmeistari kvenna varð María Guðsteinsdóttir, Ármanni, en í karlaflokki sigarði Fannar Dagbjartsson, líka Ármanni.María lyfti 95,0 kg í -72,0 kg flokki og Fannar lyfti 250,0 kg í -120,0 kg flokki. Ármenningar léti ekki þar staðar numið, heldur tóku þeir líka heim liðabikarinn sem besta bekkpressuliðið.
Heildarúrslit og Íslandsmet: IMbekk2011.
Að loku móti afhenti Sigurjón Pétursson kraftlyftingafélaginu Massa úr Njarðvíkum verðlaunin fyrir sigurinn í liðakeppninni 2010.
Mótið endaði á því að Hörður Magnússon, kraftlyftingadómari, tók við heiðursskjali úr hendi Sigurjóns fyrir sitt mikla starf í þágu íþróttarinnar og honum til heiðurs fimmtugum.
Kraftlyftingafélag Akraness á heiður skilið fyrir vel framkvæmt mót þar sem búið var að vanda til verka í smáatriðum. Margar vinnufúsar hendur létu hlutina ganga hratt og vel fyrir sig.
You can help kraft.is and possibly increase your deadlift!
I am looking for a few volunteers to take part in a project involving the kraft.is website.
No special qualifications needed, and it will only require you to do spend a few hours in front of your computer doing some very simple work (you decide when – and how much you want to do).
When the project is launched, I am sure it will bring lots of excitement to the Kraft-community, you will get full credit for your work and the thanks of your grateful powerlifting-friends. Your deadlift will also increase by 20kg (this is unconfirmed).
Contact me on Facebook or via email for more information, if you are interested in participating!
Best regards
Klaus Jensen
klaus@sixfootfour.net
Þorramót KFA
12. febrúar n.k. fer fram þorramótið í kraftlyftingum á Akureyri. Keppt er í kraftlyftingum (öllum 3 greinum) og er mótið opið keppendum frá öllum löglegum félögum Kraftlyftingasambands Íslands – ÍSÍ. Um kvöldið fer svo fram þorrablót (banquet) samhliða aðalfundi félagsins.
Skráningarfrestur er til föstudagsins 7. febrúar n.k. og berast allar skráningar í email (kfakureyri@gmail.com) – ATH: eftirtaldar upplýsingar verða að fylgja öllum skráningum – fullt nafn, kennitala, félag, þyngdarflokkur og símanúmer!
Viktun verður kl 11:00 og mótið sjálft mun hefjast 13:00.
Skráningargjaldið verður 2500kr og má borga við vigtun.
Íslandsmótið í bekkpressu 2011 – upplýsingar
Íslandsmeistaramótið í bekkpressu fer fram í íþróttamiðstöð Akraness, Jaðarsbökkum, laugardag 29. janúar nk.´
Mótið hefst kl. 11.00. Aðgangseyrir er kr. 1000,- og mótshaldari er Kraftlyftingafélag Akraness.
42 keppendur frá 8 félögum eru skráðir til leiks, þar af 9 konur.
Keppt verður í 3 hollum:
Holl 1 – allar konur
Holl 2 – karlar -66,0 kg - 93.0 kg
Holl 3 – karlar -105,0 kg – +120,0 kg
Til keppenda:
Vigtun fyrir holl 1 og 2 er kl. 9.00
Vigtun fyrir holl 3 er kl. 11.30
- löglegur búnaður: http://www.powerlifting-ipf.com/Approved-List.51.0.html
Athugið að ekki er hægt að breyta um þyngdarflokk, þú keppir í flokknum sem þú ert skráður í eða keppir ekki.
Athugið nýsamþykktar reglur IPF:
Búið er að fella niður “áberandi ójöfn útrétting þegar stöng er pressuð frá brjósti” sem ástæðu ógildingar. Stöng má samt ekki síga. Fótahreyfing er leyfð en allur sólinn verður að vera á gólfinu (keppnispalli) þ.e ekki má lyfta fótum.
Í vigtun fá skráðir keppendur og aðstoðarmenn nafnspjöld sem gefa aðgang að upphitunar- og keppnissvæði. Aðrir vinir og vandamenn fylgjast með mótið af áhorfendapöllunum.
Spurningum varðandi mótshaldið skal beint á mótshaldara
Kraftlyftingaþing
Fyrsta þing Kraftlyftingasambands Íslands fer fram laugardaginn 29. janúar nk í fundarsal Íþróttamiðstöðvarinnar Jaðarsbökkum á Akranesi. Þingstörfin hefjast kl. 17.00.
Atkvæðisbærir fulltrúar eru 25, einn frá hverju héraðssambandi og 2-4 frá hverju félagi eftir iðkendafjölda. Auk þess eiga rétt til þingsetu stjórn og nefndir KRAFT og fulltrúar frá ÍSÍ og ráðuneyti íþróttamála.
Dagskrá og framkvæmd þingsins er samkvæmt lögum sambandsins.
Öll félög (nema hið nýstofnaða félag Seltjarnaress) eiga rétt á að senda fulltrúa á þingið. Kjörbréf hafa verið send héraðssamböndum, en fulltrúar þurfa að leggja fram löglega undirrituð kjörbréf við upphaf þings. Félög sem hafa ekki fengið kjörbréf skulu hafa samband sem fyrst við sín svæðis/héraðssambönd og bæta úr því.
Keppendalisti uppfærður
Mistök urðu í skráningu Massa á Íslandsmeistaramótið í bekkpressu.
Að fengnu samþykki mótshaldara hefur stjórn KRAFT ákveðið að veita undanþágu og leyfa þeim að lagfæra skráninguna þó að frestur sé útrunninn. Við þetta fjölgar keppendum á mótinu nokkuð og verða samtals 42.
Enn skal ítrekað að héðan ífrá keppir enginn sem ekki er löglega skráður iðkandi kraftlyftinga í Felix, skráningarkerfi ÍSÍ.
Stjórn félaga og keppendur sjálfir þurfa að hjálpast að við að tryggja að skráningarmál séu í lagi.
Reglugerðir KRAFT má finna undir UM KRAFT – reglugerðir og upplagt að flétta þar upp ef spurningar vakna.
Endanlegur keppendalisti lítur svona út:
| FL. | NAFN | FÉLAG |
| - 52,0 kg | Hildur Sesselja Aðalsteinsdóttir | Ármann |
| - 57,0 kg | Signý Harðardóttir | Massi |
| - 57,0 kg | Guðrún Maronsdóttir | Ármann |
| - 63,0 kg | Erla Kristín Árnadóttir | Ármann |
| - 63,0 kg | Erla Ragnarsdóttir | Ármann |
| - 72,0 kg | María Guðsteinsdóttir | Ármann |
| - 72,0 kg | Auður A. Jónsdóttir | Ármann |
| - 84,0 kg | Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir | Ármann |
| + 84,0 kg | Lára Bogey Finnbogadóttir | Akranes |
| - 66,0 kg | Róbert Eyþórsson | Mosfellsbær |
| - 66,0 kg | Arnþór Lúðvíksson | Massi |
| - 74,0 kg | Davíð Birgisson | Massi |
| - 74,0 kg | Steinar Freyr Hafsteinsson | Massi |
| - 74,0 kg | Hörður Birkisson | Massi |
| - 74,0 kg | Harrý Ágúst Harrýson | Breiðablik |
| - 74,0 kg | Agnar Þór Guðmundsson | Seltjarnarnes-Zetorar |
| - 74,0 kg | Dýri Kristjánsson | Seltjarnarnes-Zetorar |
| - 83,0 kg | Ásmundur Símonarson | Ármann |
| - 83,0 kg | Gísli Þrastarson | Ármann |
| - 83,0 kg | Skírnir Sigurbjörnsson | Ármann |
| - 93,0 kg | Einar Örn Guðnason | Akranes |
| - 93,0 kg | Óskar Ingi Víglundsson | Massi |
| - 93,0 kg | Ásmundur Örn Guðmundsson | Akranes |
| - 93,0 kg | Freyr Bragason | Breiðablik |
| - 93,0 kg | Andrzej Ostrowski | Massi |
| - 93,0 kg | Árni Þór Guðmundsson | Akranes |
| - 93,0 kg | Ingimundur Björgvinsson | Ármann |
| - 93,0 kg | Aron Lee Du Teitsson | Ármann |
| -105,0 kg | Hervar Bragi Eggertsson | Massi |
| -105,0 kg | Krzysztof Stanislaw Pokojski | Breiðablik |
| -105,0 kg | Ásmundur R. Ólafsson | Massi |
| -105,0 kg | Þorvarður Ólafson | Massi |
| -105,0 kg | Nikulás Rúnar Sigurðsson | Akranes |
| -105,0 kg | Ingi Stefán Guðmundsson | Sindri |
| -120,0 kg | Ragnar Axel Gunnarsson | Massi |
| -120,0 kg | Árni Freyr Stefánsson | Akranes |
| -120,0 kg | Fannar Dagbjartsson | Ármann |
| -120,0 kg | Stefán Svavarsson | Massi |
| +120,0 kg | Sigfús Helgi Kristinsson | Akranes |
Laugardagsæfing í Smáranum
Nk laugardag flytur kraftlyftingadeild Breiðabliks loksins í sína framtíðar æfingaraðstöðu. Þó nokkur tonn af lóðum og tækjum þurfa að færa sig um set. Allir sem vettlingi/vinnuhönskum valda og telja sig eiga Auðuni/Breiðabliki greiða að gjalda ættu að nota tækifærið og gefa laugardagsæfinguna í sjálfboðavinnu við flutningarnar.
Mæting í Smáranum kl. 11.00 nk laugardag (22.janúar). Hafa má samband við Auðunn 897 8017 og láta vita af sér.
ÍM – keppendalisti
Skráningu er lokið á Íslandsmeistaramótið í bekkpressu sem fram fer á Akranesi laugardaginn 29.janúar nk.
Í fyrsta sinn eru allir keppendur löglega skráðir í Felix, skráningarkerfi ÍSÍ, og er það áfangi sem er ástæða til að fagna.
Keppt er í nýjum þyngdarflokkum og þurfa keppendur að athuga að þeir verða að ná vigtun í þeim flokki sem þeir eru skráðir í.
36 keppendur, 9 konur og 27 karlar eru skráðir til leiks og eiga 8 af 9 félögum keppendur á mótinu. Til samanburðar má nefna að í fyrra voru 29 keppendur skráðir. Útlit er fyrir spennandi keppni í mörgum flokkum og ef marka má reynsluna frá í fyrra ætla Skagamenn að útbúa veislu fyrir keppendur og áhorfendur.
Fyrsta almenna þing Kraftlyftingasambandsins fer fram á Akranesi um leið.
Það er því ljóst að Íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum, Akranesi er réttur staður fyrir unnendur kraftlyftinga þennan laugardag og hvetjum við alla til að fjölmenna með myndavélar og lúðra og styðja sína menn.
| FL. | NAFN | FÉLAG |
| - 52,0 kg | Hildur Sesselja Aðalsteinsdóttir | Ármann |
| - 57,0 kg | Signý Harðardóttir | Massi |
| - 57,0 kg | Guðrún Maronsdóttir | Ármann |
| - 63,0 kg | Erla Kristín Árnadóttir | Ármann |
| - 63,0 kg | Erla Ragnarsdóttir | Ármann |
| - 72,0 kg | María Guðsteinsdóttir | Ármann |
| - 72,0 kg | Auður A. Jónsdóttir | Ármann |
| - 84,0 kg | Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir | Ármann |
| + 84,0 kg | Lára Bogey Finnbogadóttir | Akranes |
| - 66,0 kg | Róbert Eyþórsson | Mosfellsbær |
| - 74,0 kg | Hörður Birkisson | Massi |
| - 74,0 kg | Harrý Ágúst Harrýson | Breiðablik |
| - 74,0 kg | Agnar Þór Guðmundsson | Seltjarnarnes-Zetorar |
| - 74,0 kg | Dýri Kristjánsson | Seltjarnarnes-Zetorar |
| - 83,0 kg | Ásmundur Símonarson | Ármann |
| - 83,0 kg | Gísli Þrastarson | Ármann |
| - 83,0 kg | Skírnir Sigurbjörnsson | Ármann |
| - 93,0 kg | Einar Örn Guðnason | Akranes |
| - 93,0 kg | Óskar Ingi Víglundsson | Massi |
| - 93,0 kg | Ásmundur Örn Guðmundsson | Akranes |
| - 93,0 kg | Freyr Bragason | Breiðablik |
| - 93,0 kg | Árni Þór Guðmundsson | Akranes |
| - 93,0 kg | Ingimundur Björgvinsson | Ármann |
| - 93,0 kg | Aron Lee Du Teitsson | Ármann |
| -105,0 kg | Ástmundur Sigmarsson | Selfoss |
| -105,0 kg | Krzysztof Stanislaw Pokojski | Breiðablik |
| -105,0 kg | Ásmundur R. Ólafsson | Massi |
| -105,0 kg | Nikulás Rúnar Sigurðsson | Akranes |
| -105,0 kg | Ingi Stefán Guðmundsson | Sindri |
| -120,0 kg | Ragnar Axel Gunnarsson | Massi |
| -120,0 kg | Árni Freyr Stefánsson | Akranes |
| -120,0 kg | Fannar Dagbjartsson | Ármann |
| -120,0 kg | Stefán Svavarsson | Massi |
| -120,0 kg | Birgir Sólveigarson | Selfoss |
| +120,0 kg | Sigfús Helgi Kristinsson | Akranes |
| +120,0 kg | Daníel Geir Einarsson | Selfoss |
Nýtt kraftlyftingafélag
Seltirningar eignuðust kraftlyftingafélag á dögunum þegar stofnað var Kraftlyftingafélag Seltjarnarness – Zetorar. Stofnfélagar voru 13 og formaður félagsins er Magnus Örn Guðmundsson.
Félagið hefur þegar fengið inngöngu í KRAFT og er 9.aðildarfélag Kraftlyftingasambands Íslands og 3.kraftlyftingafélagið innan UMSK.
Við óskum þeim velkomin í hópinn.
Flestir stofnfélagar auk formanns og varaformanns KRAFT:
